Tilkynning: Hundrað þúsund lásu Stundina

Fjölgað í ritstjórn Stundarinnar.

Fyrirvari vegna hagsmuna: Eftir­farandi er frétt um Stundina skrifuð af ritstjórn Stundarinnar.

Rúmlega hundrað þúsund notendur voru að vefsíðu Stundarinnar í síðustu viku, samkvæmt opinberum vefmælingum Modernus. Þetta gerir Stundina að tíunda mest lesna vef landsins átta vikum eftir opnun.

Stundin var stofnuð í janúar síðastliðnum með hjálp hópfjármögnunar á síðunni Karolina fund. Um 1.250 einstaklingar styrktu stofnun Stundarinnar og safnaðist hærri upphæð en áður hefur gerst í sögu hópfjármögnunar á Íslandi.

Áskriftarmiðill á vefnum

Stundin kemur út í daglegri vefútgáfu og mánaðarlegri prent­útgáfu. Vefur Stundarinnar er áskriftar­miðill. Áskriftar­kerfi Stundarinnar á sér að hluta fyrirmynd í áskriftar­kerfi New York Times á vefnum. Þannig er hluti vefsins opinn, en sett er hámark á það hversu oft sé hægt að fletta greinum án þess að greiða áskriftar­gjald sem nemur 750 kr. á mánuði. Þannig fá þeir sem ekki eru áskrifendur sex ritstjórnar­greinar í fullri lengd fríar í hverjum mánuði gegn því að þeir skrái sig sem notendur. 

Prent­útgáfa Stundarinnar hefur komið út þrisvar og er von á fjórða tölublaði til áskrifenda og í verslanir 7. maí næst­komandi.

Stundin gerði tölvupóst­könnun á meðal áskrifenda í síðasta mánuði. Rúmlega þúsund svör bárust. 

Niðurstöður áskrifendakönnunar

Meðal niður­staðna eru að um 90% svarenda kváðu líklegt að þeir myndu mæla með Stundinni við ættingja eða vini, en 8% kváðu það hvorki líklegt né líklegt. Þá sögðust 1,8% telja það ólíklegt. 

93% svarenda töldu auglýsinga­magn vera hæfilegt. Auglýsinga­magn í prent­blaði Stundarinnar er um 25%, en í fríblöðum fer það yfir 70%.

Þegar spurt var hversu vel svarendum þættu tiltekin hugtök eiga við um Stundina reyndust 90% vera sammála því að Stundin væri traust­vekjandi, 92% töldu hana vera fræðandi og 95% áhugaverð.

Ritstjórnin stækkuð

Vegna fjölgunar áskrifenda hefur verið unnt að stækka ritstjórn Stundarinnar síðustu vikur. Blaða­konan Áslaug Karen Jóhanns­dóttir hóf störf í síðasta mánuði, en hún starfaði áður á Skessu­horni og DV. Í síðustu viku hóf Ingi Freyr Vilhjálmsson blaða­maður störf. Ingi hefur meðal annars starfað sem blaða­maður á Frétta­blaðinu og frétta­stjóri DV. Ingi hefur þrisvar verið tilnefndur til blaðamanna­verðlauna, þar af tvisvar fyrir rannsóknar­blaða­mennsku ársins. Einnig hefur Jón Bjarki Magnússon blaða­maður hafið skrif fyrir Stundina. Hann hlaut blaðamanna­verðlaun ársins síðastliðin tvö ár í röð, annars vegar fyrir rannsóknar­blaða­mennsku og sem blaða­maður ársins. 

Fyrir eru starfandi á Stundinni Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir ritstjóri, Jón Trausti Reynisson, ritstjóri og framkvæmda­stjóri, Hjálmar Friðriksson blaða­maður og Jóhann Páll Jóhannsson blaða­maður.

Að auki skrifa fjölmargir reglulega eða óreglu­lega í Stundina, ýmist sem bloggarar, lausa­pennar eða pistla­höfundar. Meðal þeirra eru Ásgeir Jónsson, Ásta Helga­dóttir, Benedikt Erlingsson, Benjamín Julian, Bergþór Pálsson, Björn Þorláksson, Ellert Grétarsson, Freyja Búadóttir, Guðmundur Hörður Guðmundsson, Hanna Ólafs­dóttir, Hall­grímur Helgason, Jóhannes Björn, Jón Ólafsson, Kristján Már Gunnarsson, María Lilja Þrastar­dóttir, Nanna Rögnvaldar, Ólöf Stein­unnardóttir, Óskar Ericsson, Óttar Guðmundsson, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Ragnar Þór Pétursson, Sigrún Daníels­dóttir, Smári McCarthy, Snæbjörn Brynjarsson, Svava Jóns­dóttir, Teitur Atlason og Þórdís Elva Þorvalds­dóttir.

Gert er ráð fyrir að frekari fjölgun á ritstjórn haldist í hendur við þróun áskrifta­tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár