Langaði til að lýsa ferðalagi þjóðarinnar úr hinum myrku öldum

Bækurnar höfðu blundað lengi í Hallgrími áður en hann skrifaði Sextíu kíló af sólskini og nú Sextíu kíló af kjafts­höggum. Hann fór oft á skíði á Siglu­firði og fannst það stórkostlegt. Svo heyrði hann sögu af kotbónda sem var að koma heim rétt fyrir jól en það var svo snjóþungt að hann fann ekki bæinn sinn. Þar með var upphafið komið.

Bók

Sextíu kíló af kjafts­höggum

Höfundur Hallgrímur Helgason
Forlagið - JPV útgáfa
544 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Sextíu kíló af kjafts­höggum, þetta er bók um Gest Eilífsson og fólkið í Segul­firði,“ segir höfundurinn Hall­grímur Helgason. Um er að ræða sjálfstætt framhald skáldsögu sem kom út 2018 sem heitir Sextíu kíló af sólskini.

„Hérna fylgjumst við áfram með þessu fólki að brasa í byrjun tuttugustu aldar að reyna að komast út úr torf­kofunum og inn í nútímann. Gestur er þarna kominn í ansi lítið torfkot á Eyrinni. Sem sagt fluttur inn í bæ með sínu fólki, hálf fjöl­skyldan fórst í snjóflóði í síðustu bók þannig að það er lítið eftir af fólki. En samt er hann með fjóra munna á sínu framfæri og hann þarf að sjá fyrir þessu fólki, hann er eina fyrir­vinnan. Þetta er mikið basl en svo fyllist hann góðri von þegar tveir norskir bræður, Eviger-bræður, koma og bjóðast til að kaupa gömlu jörðina sem er hinum megin við fjörðinn. Þarna eygir hann bara …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Albert Einarsson skrifaði
    Hlakka til að lesa kjaftshöggin, 60 kíló af sólsskini er frábær. Sigló var ævintýri og Klondike, en Klondike er ekki í Kaliforníu heldur í Yukon í norðvestur Kanada, langt upp í kuldahrollinum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár