400 skotum hleypt af við morðið á blaðamanni og fjölskyldu hans

Frá árinu 1992 hafa yfir 1.400 blaðamenn verið myrtir víðs vegar um heiminn. Sett hefur verið á stofn sérstök rann­sóknarnefnd innan alþjóða glæpa­dómstólsins sem mun fjalla um nokkur morðanna.

Á tæplega þrjátíu árum hafa yfir1.400 blaðamenn verið myrtir.
Á tæp­lega þrjá­tíu árum hafa yfir1.400 blaða­menn verið myrtir. Mynd: Sameinuðu þjóðirnar

Síðasta skoðana­grein mexíkóska blaða­mannsins Miguel Angel Lopez Velasco fjallaði um morð á konum, frændhygli og mengað drykkjar­vatn. Greinin birtist í dagblaðinu Notiver og í henni skrifaði Velasco að yfirvöld hefðu heitið því að taka á öllum þessum málum og greinin væri áminning um að standa við þau loforð. Aðeins nokkrum klukku­stundum síðar var hann látinn.

Á júnínóttu árið 2011 brutust menn inn á heimili hins 55 ára gamla blaða­manns er hann var í fasta svefni og skutu hann til bana. Þeir létu ekki þar við sitja heldur myrtu einnig eiginkonu hans og yngsta son þeirra hjóna. Þeir hleyptu samtals 400 skotum af í árásinni. Nú, áratug síðar, hafa morðingjarnir enn ekki fundist. Balbina Flores, sem fer fyrir samtökunum Frétta­menn án landamæra í Mexíkó, segir að í yfir 90 prósent tilvika komist morðingjar blaða­manna upp með glæpi sína í landinu.

Morðið á Velasco er nú hins vegar komið til meðferðar rann­sóknar­nefndar á vegum alþjóða glæpa­dómstólsins í Haag og í dag hófust opin réttarhöld hans um brot á fjölmiðla­frelsi víðs vegar um heiminn. Morð á þremur blaða­mönnum verða tekin sérstak­lega fyrir. Morðið á Velasco er eitt þeirra. Morðið á blaða­konunni og ritstjóranum Lasantha Wickrematunge frá Sri Lanka er annað og það þriðja er morðið á sýrlenska blaða­manninum Nabil al-Sharbaji.

Nokkur alþjóðleg samtök blaða­manna komu að stofnun rann­sóknar­nefndarinnar enda morð á blaða­mönnum tíð, hafa verið yfir 1.400 talsins frá árinu 1992. Átta af hverjum tíu eru óupplýst.

Flest voru þau framin í Mið- og Suður-Ameríku og á þeim slóðum er einnig líklegast að morðingjar komist upp með verknað sinn. Ástandið er verst í Mexíkó og er landið eitt það hættulegasta í heimi fyrir blaðamenn að starfa í.

Morðið á Velasco var öðrum til viðvörunar og aðeins byrjunin, segir Flores. Í kjölfar þess voru fleiri blaðamenn drepnir í Veracruz-ríki Mexíkó þar sem Velasco starfaði. Blaða­konan Yolanda Ordaz de la Cruz, sem vann með Velasco á dagblaðinu Notiver, var einnig drepin og það aðeins mánuði síðar. Árið 2012 var önnur blaðakona, Regina Martinez Perez, sem starfaði á viku­blaðinu Proceso, myrt.

Allt gerðist þetta í valdatíð ríkis­stjórans Javier Duarte de Ochoa. Á meðan hann gegndi embætti á árunum 2010-2016 voru sautján blaðamenn myrtir í Veracruz og þrír hurfu sporlaust. Hann var þekktur fyrir að láta njósna um blaðamenn og hélt „svartan lista“ yfir þá sem gagnrýndu hann og honum mislíkaði.

Lítið breyttist með nýjum forseta

Ríkis­saksókn­arinn í Veracruz hélt því fram að morðið á Velasco væri tengt valda­miklum eiturlyfja­barón á svæðinu. Rannsókn málsins var síðar látin niður falla án þess að nokkur botn fengist í málið. Duarte var hins vegar ákærður fyrir spillingu árið 2018 og dæmdur til níu ára fangelsis­vistar.

Er Andres Manuel Lopez Obrador varð forseti Mexíkó árið 2018 hét hann því að auka öryggi blaða­manna í landinu og taka fastar á málum en lítið hefur breyst. Frá því hann tók við embætti hafa 43 blaðamenn verið myrtir og 69 aktivistar, m.a. fólk sem er að berjast fyrir mann­réttindum, náttúru­vernd og öðrum umhverfis­málum.

Morð á blaða­mönnum eru tíð í löndum þar sem pólitísk ólga ríkir eða vopnuð átök geisa. Blaðamenn eru hins vegar ekki heldur öryggir í öðrum ríkjum. Morðið á blaða­konunni Daphne Caruana Galizia á Möltu árið 2017 er dæmi um slíkt. „Enginn á von á því að nokkuð slíkt geti gerst í Evrópu­sambands­ríki,“ segir systir hennar, Corinne Vella. „Við getum aðeins dregið þá ályktun að ef þetta er slæmt í ríkjum sem almennt verja réttindi fólks, gildi þess og tjáningar­frelsi, þá hljóti þetta að vera enn verra á stöðum þar sem ekkert slíkt er í hávegum haft.“

Blaða­konan hafði verið að rannsaka Panama­skjölin og spillingu í heima­landinu um það leyti sem hún var myrt. Lögreglan hefur handtekið þrjá í tengslum við morðið og einn þeirra var fyrr á þessu ári sakfelldur fyrir þátt sinn í því. Í ágúst tilkynntu yfirvöld svo að viðskipta­maður sem Galizia hafði verið að rannsaka áður en hún lést verði einnig dreginn fyrir dóm.

Vald að greina opinberlega frá

Rann­sóknar­nefndin sem fjalla mun um fjölmiðla­frelsi og morð á blaða­mönnum hefur ekki vald­heimildir til að sakfella fólk en getur, í ljósi niður­staðna sinna, þrýst á ríkis­stjórnir að vernda blaðamenn. Starf hennar mun einnig setja kast­ljósið á þau ríki þar sem fjölmiðla­frelsi er fótum troðið og rann­sóknir morða á blaða­mönnum í molum. „Það felst vald í því að nafn­greina opinber­lega, upphátt, land þar sem yfirvöld hafa ekki tekið ábyrgð og vanrækt ákveðnar rann­sóknir,“segir mann­réttinda­lögfræðingurinn Almudena Bernabeu sem mun leiða rann­sóknar­nefndina og réttar­höldin. „Enginn vill heyra slíkt um sín eigin kerfi og sínar eigin stofnanir. Ég held að það hafi gildi að tala um þetta opinber­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár