„Þetta eru engar megrunarferðir"

Hjalti Björnsson eyðir öllum sínum frítíma á fjöllum eða í annarri útivist. Hann hefur sérstakan áhuga á því að sofa í snjóhúsum.

Harðjaxl
Harðjaxl Hjalti Björns­son er úti­vista­maður af lífi og sál. Hann hefur dálæti á því að tjalda á fjöllum að vetri til. Mynd: Ásdís Gunnarsdóttir

„Undan­farin 10 ár hef ég haft mikinn áhuga á því að fara í útilegur á fjöll að vetri til. Þá gisti ég ýmist í tjaldi eða snjóhúsum,“ segir Hjalti Björnsson, dagskrár­stjóri á sjúkra­húsinu á Vogi og farar­stjóri hjá Ferða­félagi Íslands. Hjalti notar nær allan sinn frítíma í hvers­konar útiveru. Hann fer einu sinni í viku með hóp sinn, Alla leið, á fjöll undir fána Ferða­félags Íslands. Þá er hann virkur í starfi björgunar­sveitanna. Að sumrinu fer hann með hópa um Víknasl­óðir, Lónsöræfi, Stórurð og kringum Langasjó. Að haustinu stundar hann síðan veiðar á rjúpu og hrein­dýrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár