Þingmenn Framsóknar vilja sjá ríkisfyrirtæki um rafeldsneytisframleiðslu

Í þings­ályktunar­tillögu frá þing­flokki Fram­sóknar er lagt til að ríkis­stjórnin skoði stofnun fyrir­tækis um rafeldsneytis­framleiðslu, sem yrði í meirihluta­eigu ríkisins. Hafa skuli til hliðsjónar hvernig Noregur byggði upp olíu­vinnslu sína.

Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Stefán Vagn Stef­áns­son þing­maður Fram­sóknar er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkur Framsóknar­flokksins leggur til ríkis­stjórnin skoði stofnun ríkis­félags um rafeldsneytis­framleiðslu á Íslandi, og að við frum­athugun í þeim efnum verði litið til starfsemi Equinor í Noregi, sem áður hét Statoil.

Þings­ályktunar­tillaga flokksins um þetta mál hefur verið lögð fram á Alþingi, en á bak við hana standa allir þingmenn flokksins sem ekki sitja sem ráðherrar. Stefán Vagn Stef­ánsson er fyrsti flutnings­maður tillög­unnar.

Ábatinn renni til þjóðarinnar

Í greinar­gerð með tillögu þingmanna Fram­sóknar segir að fram­leiðsla rafeldsneytis, þá vetnis eða annars rafeldsneytis í formi ammóníaks, metanóls eða metans, séu græn tækifæri sem bíði þess að vera nýtt. Framtíðartækinfærin í þessum efnum séu mikil, og mikilvægt sé að Ísland verði sjálfbært er kemur að öflun rafeldsneytis.

En þing­flokknum er ljóslega ekki sama hvernig staðið verður að því að nýta þau tækifæri sem liggja í fram­leiðslunni, heldur vill horfa til þess að stofnað verði ríkis­félag um fram­leiðsluna til þess að tryggja að stærsti hluti ábatns af fram­leiðslunni renni til þjóðarinnar.

„Ef horft er til Noregs og stofnunar ríkis­olíu­félagsins Statoil árið 1972 ætti öllum að vera ljós ábati norska ríkisins af þeirri ákvörðun. Norski olíu­sjóðurinn er einn sá stærsti í heiminum í dag og hefur gerbreytt stöðu Norðmanna til uppbyggingar innviða og þjónustu við íbúa um allan Noreg. Ísland er í kjörstöðu til að nýta auðlindir sínar til fram­leiðslu rafeldsneytis, bæði fyrir innan­lands­framleiðslu og mögulega til útflutnings, og styrkja þannig tekju­stofna ríkis­sjóðs,“ segir í greinar­gerðinni með þings­ályktunar­tillögu fram­sóknarfólks.

Þar segir einnig að það megi velta upp hvort tekjur af slíku fyrirtæki, ef af yrði, ættu að renna í samfélags­sjóð líkt og þeim sem Norðmenn hafa komið sér upp í tengslum við olíu­vinnslu sína.

Í greinar­gerð fram­sóknarfólks segir einnig að til að stofnun ríkis­félags um fram­leiðsluna geti orðið að veruleika skipti „stuðningur og aðgerðir opinberra aðila og nýsköpunar­sjóða afar miklu máli svo möguleiki sé á að skapa það umhverfi sem best verður á kosið og styðja við þróun tækni og lausna“.

„Við á Íslandi erum í sterkri stöðu til orku­skipta. Þar af leiðandi þurfum við að gæta þess að tækifærin sem liggja fyrir í þessum mála­flokki renni okkur ekki úr greipum. Tæknin er til staðar og okkur ber að nýta hana í þágu þjóðarinnar,“ segir þing­flokkur Fram­sóknar í tillögu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár