Netflix í sigtinu hjá Apple

Tækni­risinn Apple situr á miklum fjármunum og gæti farið í yfirtökur á fyrir­tækjum til að styrkja starfsemi félagsins.

Tækni­risinn Apple er sagður vera með efnis­veituna Netflix í sigtinu fyrir mögulega yfirtöku. Apple situr á fúlgum fjár eftir mikinn vöxt fyrir­tækisins á undan­förnum áratug, en margt bendir þó til þess að nú sé farið að hægja á miklum vexti fyrir­tækisins.

Í umfjöllun Bloomberg segir að Apple sé nú með 130 milljarða Bandaríkjdala á lausu til að þess að nýta til viðskipta, en þrátt fyrir að það hafi hægt á miklum hagnaði fyrir­tækisins, þá er ekki hægt að segja annað en að staða fyrir­tækisins sé ennþá sterk. Fyrir­tækið hefur styrkt stöðu sína um 45 milljarða Bandaríkja­dala á hverju ári, eftir að greiddur hefur verið út arður.

Laust fé frá rekstri er ríflega 230 milljarðar Bandaríkja­dala, en stór hluti þeirrar fjárhæðar er geymdur í ríkis­bréfum og öðru eignum erlendis.

Markaðs­virði Netflix er nú 152 milljarðar Bandaríkja­dala, en félagið hefur farið mikla sigurför á fjölmiðla­markaði á undan­förnum fimm árum, og vaxið mikið. Notendur eru nú 137 milljónir á heimsvísu.

Apple hefur hrapað nokkuð í verði á undan­förnum mánuðum, eftir að hafa farið yfir 1.000 milljarða Bandaríkja­dala í fyrra, eða sem nemur um 120 þúsund milljarða króna. Nú er markaðs­virði félagsins 805 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 96 þúsund milljörðum króna.

Óhætt er að segja að Íslendingar hafi tekið Netflix opnum örmum eftir að félagið hóf formlega að bjóða upp á þjónustu sína á Íslandi. Samkvæmt könnun MMR árið 2017, var yfir helmingur heimila í landinu með áskrift af efnis­veitunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár