Telja „órökréttar og illa undirbúnar“ aðgerðir boðaðar til að bjarga fjármálum ríkisins

Bílgreina­sambandið og SVÞ eru hvassyrt í garð stjórn­valda í umsögn sinni um fjár­laga­frumvarpið og telja nýjar álögur á rafbíla, sem skilja eiga 4,9 milljörðum í ríkissjóð, til þess fallnar að veikja efnahags­lega hvata til orku­skipta.

Bílgreina­sambandið og Samtök verslunar og þjónustu telja að þær breytingar sem lagðar eru til í fjárlögum næsta árs varðandi skatt­lagningu ökutækja séu „ekki aðeins varasamar heldur einnig órökréttar og illa undir­búnar“.

Í umsögn hagsmuna­samtakanna tveggja segir að myndin sem blasi við sé að „um þessar mundir liggi engin lang­tímaáætlun eða stefnu­mótun til grund­vallar tillögunum“, sem fyrir vikið birtist sem „einskonar fjárhagslegar björgunar­aðgerðir vegna fjármála ríkisins árið 2023“.

Næstum fimm milljarða viðbótartekjur af bílum

Eins og Kjarninn fjallaði um eftir að fjármála- og efnahags­ráðherra kynnti fjár­laga­frumvarpið í september birtust í því fyrstu skrefin í að breyta gjaldtöku á bíla, en breytingar sem boðaðar eru á vöru­gjöldum og bifreiða­gjöldum á næsta ári eiga að skila 4,9 milljörðum króna í viðbótar­tekjur fyrir ríkissjóð ef áætlanir fjármála- og efnahags­ráðuneytisins stemma.

Þetta líst Bílgreina­sambandinu og SVÞ ekkert á. Segja þau að boðuð lágmarks­vörugjöld á fólks­bifreiðar muni draga úr verðmun á sparneytnum ökutækjum og eyðslu­frekum og „veikja mjög“ þá efnahags­legu hvata til orku­skipta sem eru í núgildandi kerfi vöru­gjalds á ökutæki.

Hið sama muni fyrir­hugað lágmarks­bifreiða­gjald gera og það verði þannig fýsilegra að bæði kaupa og reka eyðslu­frekar bifreiðar.

Veruleg hækkun á verði rafbíla fyrirsjáanleg

Í umsögn hagsmuna­samtakanna er bent á að ívilnanir og efnahags­legir hvatar skatt­kerfisins til orku­skipta falli að miklu leyti úr gildi eða missi virkni undir lok þessa árs og útlit sé fyrir að 20 þúsund rafbíla kvótinn, sem skatta­afsláttur er veittur af, verði uppurinn um mitt næsta ár.

Samspil þessa við boðuð lágmarks­vörugjöld segja samtökin að muni hafa veruleg áhrif til hækkunar útsölu­verðs rafmagns­bifreiða og birta samtökin í umsögn sinni mynd af nokkrum bílum framan við bílaumboð og eigin útreikningum af því hvað útsölu­verð þessara bíla myndi hækka mikið, við lok skattaívilnana og álagningu 5 prósent vöru­gjalda.

„Verðmunur mun aukast umtals­vert þegar litið er til útsölu­verðs bensín- og dísil­bifreiða annars vegar og rafmagns­bifreiða hins vegar. Virkni efnahagslegra hvata til orku­skipta munu dragast harkalega saman. Þar með eru líkur á að eftir­spurn kaupenda færist í auknum mæli að bifreiðum sem ganga, að hluta eða heild, fyrir jarðefna­eldsneyti,“ segir í umsögn samtak­anna.

Þau birta svo eigin spá um sölu bíla fram til ársins 2031, þar sem gert er ráð fyrir að 60 þúsund rafbílar seljist á árunum 2022-2030 sem myndi þýða að rafbílar yrðu 75 þúsund talsins í bílaflota lands­manna við lok árs 2030. Það er um fjórðungur þess fjölda bíla sem samtökin gera ráð fyrir að verði í umferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár