Fyrstu skrefin að breyttri gjaldtöku á bíla skili hátt í 5 milljörðum í ríkissjóð

Breytingar á vöru­gjöldum og bifreiða­gjöldum, sem eiga að koma til framkvæmda á næsta ári, munu skila 4,9 milljörðum króna í viðbótar­tekjur fyrir ríkissjóð ef áætlanir fjármála- og efnahags­ráðuneytisins stemma.

Í fjárlagafrumvarpinu eru kynnt fyrstu skrefin í þeirri viðleitni stjórnvalda til að stoppa í það gat sem myndast hefur í tekjustofnum ríkisins vegna innreiðar rafbíla..
Í fjár­laga­frum­varp­inu eru kynnt fyrstu skrefin í þeirri við­leitni stjórn­valda til að stoppa í það gat sem mynd­ast hefur í tekju­stofnum rík­is­ins vegna inn­reiðar raf­bíla.. Mynd: ON

Ríkis­stjórnin gaf það út í fyrr í sumar að flýta ætti innleiðingu gjaldtöku til að vega á móti yfir­standandi tekjutapi vegna umferðar og eldsneytis, sem meðal annars hefur leitt af mikilli fjölgun bifreiða sem ganga fyrir öðru en jarðefna­eldsneyti. Samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu sem kynnt var í dag verður einungis ráðist í hluta þeirra breytinga sem fyrir­hugaðar eru á næsta ári og fyrstu skrefin tekin.

Í fjár­laga­frumvarpinu, sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra kynnti í morgun, kemur fram að breyta eigi bifreiða­gjaldi og vöru­gjöldum á bifreiðar, með það að markmiði að fá fleiri krónur í ríkissjóð frá fleiri bíleigendum, en fram kom í máli Bjarna að við þyrftum „að fara að undirbúa okkur“ fyrir gjaldtöku á „umhverfis­vænum bílum“.

Aukin vörugjöld hækki útsöluverð um allt að 5 prósent

Alls er áætlað að 4,9 milljarðar króna innheimtist aukalega vegna þeirra breytinga sem boðaðar eru í fjármála­frumvarpinu. Breytingar á vöru­gjaldi á ökutæki, sem fela í sér að losunar­mörk vöru­gjalds verða lækkuð, skatt­prósentan sömuleiðis og að lágmarks­vörugjöld verði 5 prósent, á að skila ríkinu 2,7 milljörðum í viðbótar­tekjur, samkvæmt því sem segir í fjár­laga­frumvarpinu.

Þar segir einnig að gera megi ráð fyrir því að breytingin hafi þau áhrif að útsölu­verð nýrra fólksbíla hækki um allt að 5 prósent. Bein áhrif þessara breytinga á vísitölu neyslu­verðs, verðbólgu, eru metin um 0,2 prósent til hækkunar, samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu.

Breytingar á bifreiða­gjaldi, sem fela í sér að lágmarks­gjaldið verði hækkað og losunar­mörk hækkuð á móti, eiga að skila 2,2 milljörðum króna í viðbótar­tekjur í ríkissjóð á næsta ári.

Gert er ráð fyrir því að með þessum breytingum verði meðal-bifreiða­gjöldin nálægt því sem þau voru árið 2017, eða um 37 þúsund krónur. Tekjur af bifreiða­gjöldum hafa dregist hratt saman á undan­förnum árum.

Enn ríkir hvatar til að kaupa rafbíla

Fjármála- og efnahags­ráðherra sagði er hann kynnti fjár­laga­frumvarpið að áfram væru ríkir hvatar til þess að kaupa bíla sem ganga fyrir rafmagni að öllu leyti eða hluta, þrátt fyrir þessar breytingar.

„Þó að rafmagns­bíllinn fari að borga hærra bifreiða­gjald á hverju ári þá er ekki hægt að bera það saman við árlegan kostnað við að halda úti bensín­bifreið,“ sagði ráðherra meðal annars og birti skýringar­myndir máli sínu til stuðnings.

Ekkert um kílómetragjöld, jarðgangagjöld né vegtolla í borginni

Í frum­varpinu segir að unnið sé að heildar­endurskoðun gjaldtöku í samgöngu­kerfinu og að stefnt sé að því að fyrir­komulagið miðist í auknum mæli við notkun og hefur mátt skilja á ráðherra að einhverskonar kílómetra­gjald sé til skoðunar, auk annars.

Þessar hugmyndir eru þó enn óútfærðar og ekki inni í fjár­laga­frumvarpi næsta árs.

Ekki er heldur fjallað neitt um jarðganga­gjöld þau sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra boðaði í sumar að væru á borðinu, né svokölluð flýti- og umferðar­gjöld á höfuð­borgar­svæðinu, sem opinberir aðilar hafa verið að skoða á undan­förnum misserum.

Því má slá því föstu að gjöld af þessu tagi verði ekki lögð á árið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár