Spennan magnast vegna tollastríðs Trumps

Evrópu- og Asíuríki ætla að stilla saman strengi til að bregðast við tolla­stefnu Trumps.

Evrópu­sambandið og leiðtogar stærstu viðskipta­velda Asíu vilja eiga formlegar viðræður til að ræða viðbrögð við tolla­stríði Trumps Bandaríkja­forseta.

Frum­kvæðið að tolla­stríðinu sem þegar er skollið á hefur komið frá Donald Trump Bandaríkja­forseta, en Evrópu­sambandið og helstu leiðtogar Asíuríkja, þar á meðal Kína, vilja hefja formlegar viðræður til að kanna mótvægis­aðgerðir gegn tolla­hækkunum Bandaríkja­stjórnar.

Bloomberg greindi frá því í dag að stefnt sé að formlegum fundi með fulltrúum frá 51 einni þjóð í Evrópu og Asíu, 18. og 19. október næst­komandi. Á þeim fundi verður rætt um viðbrögð við þeim aðgerðum sem Bandaríkja­stjórn hefur þegar gripið til, sem eru tollar á innfluttar vörur frá mörgum af helstu viðskipta­löndum Banda­ríkjanna og síðan einnig ákvörðunin um að draga Banda­ríkin út úr Parísar­samkomu­laginu, sem miðar að því að draga úr mengun samkvæmt tíma­settum markmiðum til að vinna gegn hlýnun jarðar af manna­völdum.

Trump hefur hótað því að setja á tolla á Kína og fleiri Asíuríki, sem ná til viðskipta upp á 500 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 53 þúsund milljarða króna.

Það sama á við um Evrópu­ríki, en tollar sem lagðir hafa verið á málm­innflutning til Banda­ríkjanna, stál og ál, ná til Evrópu­ríkja.

Svo virðist sem Evrópu­sambandið og Asíuríki séu nú að stilla saman strengi, og ætli sér að grípa til samstilltra aðgerða, til að bregðast við tolla­stríði Trumps.

Megin­markmið Trumps með tollunum og höftum á viðskipta­frelsi, er að örva hagkerfið heima fyrir, en afar deildar meiningar eru um hvort það takist. Til lengdar litið, er talið að tolla­stríðið geti leitt til þess að allir sem verða fyrir áhrifum tapi á því, og í versta falli geti það leitt til félags­legs óstöðug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár