Hver Norðmaður á 30 milljónir í norska olíusjóðnum

Norski olíu­sjóðurinn óx um tæp tíu prósent á fyrri helmingi ársins. Sjóðurinn á tæpt prósent af öllum hluta­bréfum heims og gæti gefið hverjum Norðmanni um 30 milljónir íslenskra króna.

Norðmenn sitja á töluvert mikið af auðæfum vegna norska olíusjóðsins.
Norðmenn sitja á tölu­vert mikið af auð­æfum vegna norska olíu­sjóðs­ins. Mynd: EPA

Ávöxtun norska olíu­sjóðsins nam 9,4 prósentum á fyrstu sex mánuðum ársins og var hún aðallega drifin áfram af hækkun hlutabréfa­verðs, samkvæmt nýlega birtum hálfsárs­reikningi sjóðsins. Heildar­virði hans nemur 166 billjónum íslenskra króna, sem jafn­gildir 30 milljónum króna á hvern íbúa Noregs.

Hlutabréfa­eign sjóðsins skilaði honum tölu­verðri ávöxtun á tíma­bilinu, eða um 13,7 prósent. Þessi hækkun var aðallega vegna verð­hækkana á hluta­bréfum í bandarískum fyrir­tækjum, sem námu 17 prósent, auk þess sem evrópsk fyrirtæki hækkuðu um 13,5 prósent í virði.

1,8 milljón á mann í tæknirisunum

Nær helmingur hlutabréfa­eigna sjóðsins er í bandarískum fyrir­tækjum. Hlut­deildin er stærst í Apple, Microsoft, Alphabet (áður Google), Amazon og Facebook, en þessi fyrirtæki eru gjarnan kölluð Tækni­risarnir (e. Big Tech).

Samanlagt virði hlut­deildarinnar í þessum fyrir­tækjum nemur 9,79 billjónum króna, en það jafn­gildir 1,8 milljónum íslenskra króna á hvern Norðmann. Meira en helmingur þessarar upphæðar er bundinn í Apple eða Microsoft.

Tæpt prósent af öllum hlutabréfum heimsins

Samkvæmt vefsíðunni Statista nam heildar­virði allra hluta­bréfa á 20 stærstu kaup­höllum heimsins 110 billjónum Bandaríkja­dala síðastliðinn júní. Ef gert er ráð fyrir að langflest hlutabréf séu skráð á þessum mörkuðum má áætla að hlutabréfa­eign norska olíu­sjóðsins nemi tæpu prósenti af öllum hluta­bréfum í heimi.

Til saman­burðar nemur samanlagt markaðs­virði allra félaga á aðal­markaði Kaup­hallarinnar 2.242 milljörðum króna, en það jafn­gildir um 0,02 billjónum Bandaríkja­dala. Norski olíu­sjóðurinn er því rúmlega 50 sinnum verð­mætari heldur en öll fyrirtæki í Kaup­höllinni á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár