Vísbendingar um að öflug samkeppni skiptir meira máli en hver á fyrirtækin

Skýrsla sem var tilbúin í fyrra, en ekki birt fyrr en nýverið, færir rök fyrir því að það skipti ekki endilega máli hver eigi fyrirtæki. Neyslu­verð á Íslandi er 54 prósent yfir meðaltali ESB en raforku­verð hér er 35 prósent lægra en innan sambandsins.

Íslendingar borga miklu meira fyrir mat, föt og skó en íbúar ESB en miklu minna fyrir rafmagn til heimila þar sem seljandinn er í opinberri eigu.
Íslend­ingar borga miklu meira fyrir mat, föt og skó en íbúar ESB en miklu minna fyrir raf­magn til heim­ila þar sem selj­and­inn er í opin­berri eigu. Mynd: Anton Brink

Margt mælir með því að innleiða samkeppni þar sem henni verður komið við á Íslandi. Því fylgir aðhald, nýjar framleiðslu­leiðir eru reyndar og nýjar vörur boðnar fram á mörkuðum sem hafa staðnað. Vísbendingar eru um að öflug samkeppni skipti meira máli en hver á fyrir­tækin en ef samkeppnin á að blómstra þá verða aðstæður fyrir­tækja að vera jafnar. Þannig hafði afnám einka­leyfis fyrir­tækja í eigu hins opinbera ekki skýr áhrif á verð á póst­þjónustu, rafmagni til almennings eða síma­þjónustu.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um mat áhrifum samkeppnis­rekstrar hins opinvera á virka samkeppni og heil­brigði atvinnu­lífs hérlendis, sem unnin var af Hagfræði­stofnun Háskóla Íslands. Tvö ár eru síðan að atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið samdi við Hagfræði­stofnun um að vinna skýrsluna, en tilefnið var fyrir­spurn tíu þingmanna Sjálfstæðis­flokksins á Alþingi um málið.

Skýrslan var unnin af Sigurði Jóhannessyni, forstöðu­manni stofnunarinnar, og tveimur hagfræðingum. Hún var auk þess rýnd af tveimur óháðum sérfræðingum.

Þrátt fyrir að hafa verið tilbúin í október 2020 og skilað til ráðuneytisins var hún ekki birt á þeim tíma. Samkvæmt frétt Viðskipta­blaðsins um málið, sem birtist um síðustu helgi, var það vegna þess að atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið vildi það ekki. Hagfræði­stofnun tók einhliða ákvörðun um birtingu hennar fyrir skemmstu og er skýrslan nú aðgengileg á heimasíðu stofnunarinnar. Hún hefur hins vegar ekki verið birt á vef atvinnuvega­ráðuneytisins.

Neysluverð 54 prósent yfir meðaltali ESB

Í upphafi skýrslunnar er spurt af hverju ríki og sveitar­félög reki fyrirtæki. Þátttaka í atvinnu­lífinu sé áhættusöm og skatt­borgarar hafi ekki allir jafn­mikinn áhuga á að taka slíka áhættu.

Rök fyrir atvinnu­rekstri hins opinbera séu þó af ýmsu tagi. Stundum þurfi að leiðrétta markaðs­bresti. Stundum á reksturinn að stuðla að jöfnuði. Atvinnu­stefna kemur við sögu. Sums staðar virðast sögulegar ástæður vega þungt.

Í skýrslunni er rakið að neyslu­verð á Íslandi sé með því hæsta í Evrópu og að árið 2019 hafi það verið 54 prósent yfir meðaltali Evrópu­sambandsins (ESB). Matur og drykkur er til að mynda 40 prósent dýrari hér en að meðaltali innan sambandsins og föt og skór eru sömuleiðis 35-40 prósent dýrari.

Það er þó ekki allt dýrara hér. Rafmagns­verð til heimila er til að mynda 35 prósent undir meðaltali Evrópu­sambandsins og í skýrslunni er farið yfir að fyrir því geti verið ýmsar ástæður. „ Ein er ódýrt opinbert fjármagn, sem nýtt hefur verið til þess að byggja upp flest fyrirtæki á markaði með rafmagn og önnur er hagstæðar aðstæður af hendi nátt­úrunnar. Þriðja ástæðan gæti verið að íslensk orku­fyrirtæki – sem flest eru í eigu hins opinbera – séu svona vel rekin.“

Þá er rakið að fjar­skipti séu álíka dýr hér og í Evrópu­sambandinu en hið opinbera hefur dregið sig með öllu úr úr öllum síma­rekstri. Í ljósleiðara­þjónustu keppir hins vegar eitt einka­rekið fyrirtæki, Míla í eigu Símans, við Gagna­veituna (í eigu Orkuveitu Reykja­víkur sem er að uppistöðu í eigu Reykja­víkurborgar).

Tækifæri til að taka frekari skref

Skýrslu­höfundar segja að ýmislegt hafi verið gert á undan­förnum árum til að jafna leikinn í samkeppni fyrir­tækja ríkis og sveitar­félaga og einka­fyrirtækja en að stíga megi frekari skref.

Á meðal leiða sem þeir nefna er að æskilegt þyki að starfs­svið opinberra fyrir­tækja sé almennt betur afmarkað og þeim sett skýrari afkomu­markmið. Fengur yrði að eiganda­stefnu fyrir orku­fyrirtæki landsins og skilja mætti á milli eignar­halds á orku­framleiðslu og einkasölu á rafmagni. Þar er helst nefnt að kljúfa rafmagns­framleiðslu utan Þjórsár og Fljótsdals­stöðvar frá Lands­virkjun og skipta henni milli nokkurra fyrir­tækja. „Þannig yrði þess freistað að efla samkeppni á almennum rafmagns­markaði. Sem stendur er Lands­virkjun eina fyrir­tækið sem getur boðið rafmagn í heildsölu hér á landi sem nokkru nemur. Það hamlar gegn því að skapast geti virkur heild­sölu­markaður. Ekki yrði hróflað við sölu Lands­virkjunar til stór­kaupenda.“

Þá telja skýrslu­höfundar að bjóða ætti alþjónustu í póst­flutningum út í stað þess að binda hana við Íslands­póst og að skoða mætti betur hvort rétt sé að draga Ríkis­útvarpið af auglýsinga­markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár