Nigel Farage og félagar í Brexit flokknum snéru baki í flutning á laginu Óðurinn til gleðinnar við setningu nýs Evrópuþings. Flutningurinn sem fluttur var af saxofón kvartett var hinn hátíðlegasti og átti að bjóða nýja þingmenn velkomna.
Alls eru 29 meðlimir í Brexit flokknum. Líkt og nafnið gefur til kynna styðja þingmenn flokksins við Brexit og eru and-Evrópusinnar.
Ekki voru aðrir þingmenn alls kostar ánægðir með gjörninginn og sögðu sumir hann vera aumkunarverðan. Aðrir sögðu að þingmennirnir hafi sýnt Evrópu og öðrum þingmönnum mikla vanvirðingu með atlætinu.
Ekki voru Brexit liðar þeir einu sem voru með eins konar gjörning þar sem aðrir þingmenn fóru í gula stuttermaboli sem stóð á „Stöðvið Brexit.“ Því má segja að upphaf nýs Evrópuþings hafi verið afar skrautlegt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir