Bakkavör olli „hummuskreppu“ í Bretlandi

Kvartað var undan málm­bragði í hummus fram­leiddum af Bakkavör, flaggskipi bræðranna Ágúst og Lýðs Guðmunds­sona. Fyrir­tækið viðurkenndi að mistök hefðu orðið í framleiðslu­ferlinu.

Kvartað var undan „málm­bragði“ í hummus fram­leiddum af Bakkavör Group fyrir matvæla­verslanir í Bretlandi. Guardian greinir frá málinu og lýsir því hvernig „hummuskreppa“ skall á í Bretlandi vegna mistaka fyrir­tækisins. 

Bakkavör fram­leiðir meðal annars hummus fyrir matvæla­keðjur á borð við Sainsbury’s, Marks & Spencer og Co-op og var hummusinn víða tekinn úr sölu í kjölfar kvartana. 

Bakkavör Group er alþjóðlegt matvæla­fyrirtæki sem gerir upp í Bretlandi og var stofnað af Ágústi og Lýði Guðmunds­sonum árið 1986. Bræðurnir voru umsvifa­miklir í íslensku viðskipta­lífi á útrásar­árunum, misstu félagið eftir hrun en eignuðust Bakkavör aftur ásamt meðfjárfestum í fyrra. Samkvæmt nýjustu ársskýrslu fyrir­tækisins námu tekjur þess 1,8 milljónum punda á síðasta ári, eða 7 milljörðum íslenskra króna.

Fjöldi fólks hefur kvartað vegna hummusar Bakka­varar á samfélags­miðlum og hefur fyrir­tækið viðurkennt að mistök hafi orðið í framleiðslu­ferlinu. Bragðið af hummusinum sé vissulega undarlegt, en heilsu fólks stafi engin hætta af gölluðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár