Íslandsbanki hagnaðist um 11,1 milljarð á fyrri helmingi ársins

Hagnaður Íslands­banka á öðrum ársfjórðungi nam 5,9 milljörðum króna. Bankinn hagnaðist um rúmlega tveimur milljörðum meira á fyrstu sex mánuðum ársins en hann gerði í fyrra.

Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Íslandsbanki

Hagnaður Íslands­banka á öðrum ársfjórðungi nam 5,9 milljörðum króna, sem þýðir að hagnaður hans á fyrstu sex mánuðum ársins nam 11,1 milljarði. Bankinn hagnaðist um rúmlega tveimur milljörðum meira á fyrstu sex mánuðum ársins en hann gerði í fyrra.

Arðsemi eigin fjár bankans nam 11,7 prósentum á öðrum ársfjórðungi, sem er bæði yfir fjárhags­legum markmiðum bankans og spám greiningar­aðila. Í tilkynningu eru helstu ástæður góðrar afkomu sagðar vera sterk tekju­myndun, aðhald í rekstri og jákvæð virðis­breyting útlána.

Hreinar vaxta­tekjur bankans jukust um 21,8 prósent á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tímaskeið í fyrra og er sú hækkun sögð skýrast af hærra vaxta­umhverfi og stækkun inn- og útlána­safns bankans. Vaxta­munur bankans var 2,9 prósent á tíma­bilinu, en 2,4 prósent á sama tíma í fyrra.

Kostnaðar­hlutfall bankans, kostnaður hans sem hlutfall af tekjum, var 42,7 prósent sem er lægri kostnaðar­hlutfall en bankinn einsetur sér að hafa. Eigið fé bankans nam 203,7 milljörðum króna í lok júní 2022 og var eiginfjár­hlutfall hans 21,5 prósent, miðað við 25,3 prósent í lok síðasta árs.

Í tilkynningu frá bankanum er haft eftir Birnu Einars­dóttur banka­stjóra að Íslands­banka­fólk geti sannarlega verið ánægt með niður­stöðuna á öðrum ársfjórðungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár