„Loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni“

Eigandi Smáríkisins hefur verið fundið sekur um að brjóta gegn lögum um áfengis­sölu og sektaður um hundrað þúsund krónur. Málið hefur verið pólitískt bitbein um árabil.

Árni Guðmundsson
Árni Guð­munds­son Formaður sam­tak­anna For­eldra­sam­tök gegn áfeng­is­aug­lýs­ingum kærði sig sjálfan til þess að hvetja lög­reglu áfram í rann­sókn sinni.

„Ég segi bara loksins, loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengis­löggjöfinni,“ segir Árni Guðmundsson, lektor við Háskóla Íslands í tómstunda- og félagsmála­fræði og formað­ur for­eldra­sam­taka gegn áfengisaug­lýs­ing­um. Hann gekk svo langt að kæra sig sjálfan fyrir ólögleg áfengis­kaup fyrir nokkrum árum síðan. Það gerði hann til þess að mótmæla seinagangi lögreglunnar í rannsókn á smásölu áfengis á netinu. Nú liggur loks fyrir dómur, þó ekki tengdur máli Árna, heldur vegna sölu Smáríksins á hvítvíns­belju. Var Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvars­maður áfengis­netverslunarinnar Smáríkisins, sektaður um hundrað þúsund krónur fyrir söluna en dómurinn hefur ekki enn verið birtur.

Pólitískt bitbein

Málið hefur verið sérkennilegt pólitískt bitbein. ÁTVR lét reyna á netsölu áfengis en því máli var vísað frá héraðs­dómi árið 2022. Málinu var ekki áfrýjað og mátti rekja þá ákvörðun til þáverandi fjármála­ráðherra, Bjarna Benedikts­sonar. Síðan þá hefur smásala áfengis verið í lagalegu tómi ef svo má að orði komast, en Forvarnar­samtökin voru þó ósammála því og kærðu smásöluna til lögreglu á þeim forsendum að áfengis­löggjöfin væri fullkomlega skýr hvað smásölu varðar. Fyrr­verandi fjármála­ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, var síðar gagn­rýndur harðlega fyrir að hvetja lögreglu til þess að full­rannsaka þessi mál eftir umtals­verðan drátt á rann­sókninni og var hann sakaður um óeðlileg afskipti af framkvæmdar­valdinu í kjölfarið. Það var eftir að ríkis­saksóknari krafðist þess að fá svör vegna seinagangs lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu í rannsókn á netsölu á áfengi.

Hugsi yfir Hagkaup

Í umfjöllun Vísis, sem greindi fyrst frá niður­stöðu héraðs­dóms, kemur fram að félagið sem seldi að endingu áfengið hér á landi hafi keypt það af íslenskum heildsala en ekki beint af erlendum aðila, eins og heimilt er samkvæmt reglum EES samningsins.

Var því niður­staðan sú að fyrir­tækið gerðist brotlegt við áfengis­lögin með því að brjóta gegn einka­leyfi ÁTVR.

Árni er hugsi yfir málinu og bendir á að fleiri selji áfengi í smásölu og nefnir þar Hagkaup sérstak­lega.

„Það er engin lagaleg óvissa eftir, að okkar mati, og því hljóta lífeyris­sjóðirnir að hugsa sinn gang varðandi áfengis­sölu í verslunum sem þeir eiga að stórum hluta,“ segir Árni sem er fullviss um að málið sé borð­leggjandi. „Það væri í okkar huga eiginlega bara kjána­skapur að vera að áfrýja þessu, enda skýr niður­staða í málinu,“ segir Árni sem lítur á niður­stöðuna sem fullnaðar­sigur.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Skilst, að málið hafi tapast á því, að beljan var keypt af innlendum heildsala. Væntanlega auðvelt að stífla upp í það gat.
    0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Í ljósi grafalvarlegra afleiðinga netsölu á áfengi á lýðheilsu, milljarða þjóðhagslegt tjón á ári og ómæld óhamingja fjölmargra fjölskyldna. Er ekki nauðsynlegt að skipa rannsóknarnefnd til að komast til botns í hvers vegna rannsókn málsins tók þetta hreint ótrúlega langan tíma? Rannsóknarnefndir hafa verið skipaðar af mun minna tilefni. Þjóðin á rétt á skýringu. Var eitthvað óeðlilegt á ferðinni?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Smáríkismálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár