Ríkið telur áfengisdóm samhljóma sænskum og finnskum fordæmum

ÁTVR telur að niður­staða Héraðs­dóms Reykjaness í áfengis­sölumáli Smáríksins samhljóma úrskurðum í nágranna­ríkjum síðustu ár. Forsvars­maður Smáríkisins hyggst áfrýja dómnum.

Smáríkið
Smáríkið Versl­unin hefur aug­lýst áfengi á sam­fé­lags­miðlum og opnað nokkuð af úti­búum und­an­farin miss­eri.

ÁTVR sýnist við fyrstu sýn að dómur í máli Smáríkisins sé samhljóða dómum sem hafa fallið í sambærilegum málum í Finnlandi og Svíþjóð. Smáríkið hefur tilkynnt að dómnum verði áfrýjað til Lands­réttar, en forsvars­maður fyrir­tækisins, Vilhjálmur Forberg Ólafsson, var dæmdur fyrir brot á áfengis­lögum og til greiðslu hundrað þúsund króna í sekt fyrir að selja hvítvíns­belju í gegnum netsölu.

Héraðs­dómur Reykjaness hefur ekki enn birt dóminn á vef sínum þegar þetta er ritað, en í ákæru á sínum tíma kom fram að ákæru­valdið liti svo á að áfengið yrði að vera erlendis þegar það væri pantað og það væri því óheimilt að flytja það til landsins, selja og afhenda eftir að það er komið til landsins.

Lagalegt tómarúm

Í grunninn snýst málið um grundvallar­reglur Evrópu­sambandsins, það er, frjálst flæði vöru og þjónustu milli ríkja og svo áfengis­laga á Íslandi þar sem ÁTVR hefur einka­réttinn á áfengis­sölu. Íslendingar …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Í ljósi grafalvarlegra afleiðinga netsölu á áfengi á lýðheilsu, milljarða þjóðhagslegt tjón á ári og ómæld óhamingja fjölmargra fjölskyldna. Er ekki nauðsynlegt að skipa rannsóknarnefnd til að komast til botns í hvers vegna rannsókn málsins tók hreint ótrúlega langan tíma? Rannsóknarnefndir hafa verið skipaðar af mun minna tilefni. Þjóðin á rétt á skýringu. Var eitthvað óeðlilegt á ferðinni?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Smáríkismálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár