Áfengisflétta Smáríkisins: Vínið keypt á Íslandi og aldrei flutt úr landi

Smáríkið flækti sölu á áfengi hér á landi með erlendum og innlendum kenni­tölum til þess að komast hjá lögum um áfengis­sölu. Áfengið yfirgaf aldrei landið, heldur endaði í höndum neytenda, oft samdægurs.

Smáríkið
Smáríkið Hér má sjá áfeng­is­aug­lýs­ingu Smá­rík­is­ins.

Dóms­niðurstaða Héraðs­dóms Reykjaness, þar sem framkvæmda­stjóri Smáríkisins var fundinn sekur um að brjóta gegn einka­leyfi ÁTVR á sölu áfengis, varpar ljósi á flókna fléttu Kjútís ehf. við að komast fram hjá áfengis­lögum hér á landi. Þó var niður­staðan einföld; áfengið sem Íslendingar pöntuðu hjá Smáríkinu í skjóli reglu­kerfis EES er keypt hér á landi og fer aldrei frá Íslandi og er að auki afhent samdægurs. Því var framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins dæmdur og sektaður fyrir að brjóta gegn einka­leyfi ÁTVR sem má einungis selja áfengi hér á landi í smásölu. 

Forsvars­maður Smáríkisins, Vilhjálmur Forberg Ólafsson, var dæmdur í Héraðs­dómi Reykjaness til þess að greiða hundrað þúsund krónur í sekt fyrir að brjóta á einka­leyfi ÁTVR til þess að selja áfengi hér á landi þegar Smáríkið seldi hvítvíns­belju í maí árið 2024. Dómur Héraðs­dóms Reykjaness var afdráttar­laus varðandi smásölu áfengis hér á landi.

Kjútís og ITC

Vilhjálmur var framkvæmda­stjóri og …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Er ekki eitthvað fáránlegt að evrópusambandið geti útbúið reglur sem við þurfum að fara eftir og stangast á við áfengislögin okkar og markmið þeirra?
    0
    • Þorkell Egilsson skrifaði
      Jú algjörlega ef það væri raunin, en það er ekki raunin. ESB og EES eru ekki sami hluturinn.
      1
    • Arnar Sigurðsson skrifaði
      Jú skoðum einmitt markmið og svo lagabókstafinn. Það væri fáránlegt ef ESB gæti útbúið slíkar reglur en meginmarkmið áfengislaga er að ,,vinna gegn misnotkun áfengis" Sala til unglinga myndi þar vega þyngst og þar sem ÁTVR er eini endurseljandi áfengis hér á landi sem stundar slíkt ætti að sjálfsögðu að loka þeim útsölustöðum. Áfengislögin hinsvegar voru sett fyrir daga netsins og fyrirbyggja alls ekki netverslun eins og fram kom í lögfræðiáliti sem ÁTVR lét vinna 2014.
      -1
    • Óskar Þór Árnason skrifaði
      Þetta hentar sjálfstæðisflokknum end sett á í stjórnartíð hans
      2
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Fáránlegt (á báða bóga)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Smáríkismálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár