Forstjóri Boeing rekinn

Vandræði Boeing halda áfram. Nú hefur forstjóri félagsins hætt störfum. Stjórn félagsins ákvað að reka hann.

Forstjóri Boeing, Dennis Muilenberg, hefur verið rekinn. New York Times greindi frá þessu í dag. David Calhoun hefur tekið við af honum.

Ástæðan er fyrst og síðast ábyrgðin sem forstjórinn ber á vandræða­gangi Boeing og alvarlegum hönnunar­göllum í fram­leiðslu hjá félaginu, meðal annars á 737 Max vélunum, en talið er að gallar í búnaði vélanna hafi verið orsökin fyrir því að tvær slíkar vélar toguðust til jarðar, í Indónesíu og Eþíópíu, með þeim afleiðingum að 346 létust, allir um borð.

Niður­stöður rann­sóknar­nefndar í fyrra slysinu, sem varð 29. október í Indónesíu, var sú að gallar í MCAS kerfi vélarinnar, sem á að sporna gegn ofrisi, hafi leitt til þess að vélin togaðist til jarðar með skelfi­legum afleiðingum. Þá komst rann­sóknar­nefndin enn fremur af því að Boeing hefði reynt að hylma yfir galla í vélunum.

Ennþá er verið að rannsaka seinna slysið í Eþíópíu, en samkvæmt frum­niðurstöðum er talið að orsökin hafi verið sú sama og í slysinu í Indónesíu.

Banda­ríkjaþing hefur framferði Boeing til rann­sóknar, og það sama á við um alríkis­lögregluna FBI.

Boeing er stærsta útflutnings­fyrirtæki Banda­ríkjanna, og stærsti flugvéla­fram­leiðandi heims. Þá er félagið einn stærsti hergagna­fram­leiðandi heimsins, og fram­leiðir auk þess vélaparta fyrir flug- og geimiðnað.

Alþjóðleg kyrr­setning á 737 Max vélunum hefur haft miklar afleiðingar fyrir Boeing, viðskipta­vini þess og jafnvel heilu þjóðríkin, eins og í tilfelli Íslands. Icelandair hefur lent í miklum hremmingum vegna kyrr­setningarinnar á Max vélunum, en ekki liggur fyrir hvenær henni verður aflétt. Gert er ráð fyrir að það verði ekki fyrr en á vormánuðum næsta árs, en óvissa ríkir þó um það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár