Lifi leikskáldið!

Leikskáld tala beint til samtíma okkar, en til að þau geti vaxið og blómstrað þurfa þau fjár­stuðning og tíma. Hér hefur viðvarandi skortur á því skapað vanda fyrir leikhúsin. Þrátt fyrir það hófst hér gósentíð í apríl.

Nýlega hélt Félag leik­skálda og handrits­höfunda opinn fund undir nafninu „Þarf alltaf að vera lík?“ sem er ekki bara hnyttinn titill heldur vísbending um ástandið í bransanum. Krimmar tröllríða bókmennta- og sjónvarps­heiminum um þessar mundir en leikhúsið glímir við annars konar höfundar­vanda sem má skipta í tvo liði: Viðvarandi skort á fjár­stuðningi til leik­skálda og fjölþætt pláss­leysi fyrir ný íslensk leikrit. 

Leikritið er skrýtin skrúfa

Þess ber að geta áður en lengra er haldið að aðlaganir á skáld­sögum fyrir leiksvið falla utan efnistaka þessa pistils enda er þar um að ræða annars konar list og annars konar hæfni. Einnig er mikilvægt að nefna að pistla­höfundur er ekki að tilkynna dauða íslenska leik­ritsins enda lifir það ágætis lífi í fjöl­breyttum formum.

Ekkert lát er á vinsældum íslenskra gaman­leikrita og söng­leikja. Eltum veðrið gengur enn þá fyrir fullu húsi í Þjóð­leikhúsinu en margir höfundar komu þar við sögu líkt …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár