Drónaárás skekur markaði um allan heim

Þegar olíuverð hækkar um 10 til 20 prósent yfir nótt þá myndast óhjá­kvæmilega skjálfti á mörkuðum. Hann náði til Íslands, og stóra spurningin er - hvað gerist næst, og hversu lengi verður fram­leiðsla Aramco í lamasessi?

Þegar um 6 prósent af olíu­framleiðslu heimsins stöðvast þá hefur það víðtækar afleiðingar um allan heim, eins og von er. Drónaárás uppreisnar­manna Húta á ríkis­olíu­fyrirtæki Sádí-Araba, Aramco, hefur haft víðtækar afleiðingar um allan heim, enda hefur olíuverð rokið upp. Hækkunin nemur á bilinu 10 til 20 prósent, á heildina litið, en misjafnlega mikið eftir tegundum og mörkuðum.

Sé horft til þróunar í Banda­ríkjunum þá hefur olíuverð hráolíu í dag hækkað um 14,97 prósent, og stendur nú í tæplega 70 Bandaríkja­dölum á tunnuna, samkvæmt markaðs­mælaborði Wall Street Journal.

Aramco er með um 10 prósent hlutdeild í olíu­framleiðslu heimsins, og er eitt stærsta fyrirtæki heimsins. Heildar­tekjur þess í fyrra námu 355,9 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 45 þúsund milljörðum króna.

Samkvæmt Wall Street Journal er talið að um 5,7 milljónir tunna af olíu, á dag, hafi fallið úr fram­leiðslu Aramco vegna árásarinnar, og er nú unnið að viðgerð. Ekki er ljóst hversu langan tíma hún mun taka. 

Bandarísk stjórn­völd hafa nú þegar komið þeim skila­borðum formlega til yfirvalda í Sádí-Arabíu, að það sé mat yfirvalda að rótina að árásunum megi rekja til yfirvalda í íran, en uppreisnar­menn Húta, sem Íran hefur stutt í skelfi­legum átökum í Jemen, hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni.

Ekki liggur fyrir hvernig Sádí-Arabía mun bregðast við árásunum, en samkvæmt Wall Street Journal, hefur meðal annars verið rætt um að bregðast við með árás á Íran.

Hlutabréfa­markaðir hafa víðast hvar sýnt tölur lækkana í dag, en þó ekki meira en á bilinu 0,3 til 2 prósent, sé horft til meðaltals helstu hlutabréfa­vísitalna.

Á Íslandi var rauður dagur lækkana í dag, en erfitt er að segja til um það með vissu hvort þessar væringar á alþjóða­mörkuðum höfðu áhrif á Íslandi. Markaðs­virði allra félaga í kaup­höllinni lækkaði nema hjá Heima­völlum, TM og Sýn, en engin viðskipti voru með bréf þeirra félaga.

Skörp olíuverðs­hækkun, eins og hefur verið raunin í dag, gæti aukið verðbólgu­þrýsting hér á landi, en það fer eftir því hvernig olíuverðs­þróunin verður á næstu misserum. Verðbólga er nú 3,2 prósent, en verðbólgu­markmiðið er 2,5 prósent.

Vísitala markaðarins lækkaði um 2,1 prósent en mest var lækkunin á bréfum Brims og Icelandair, sem bæði eiga mikið undir olíuverði. Virði Brims lækkaði um 2,93 prósent, og er nú 65,2 milljarðar, og virði Icelandair lækkaði um 4,28 prósent og er nú 35,3 milljarðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár