Segir Trump hafa boðið Assange náðun gegn upplýsingum

Fyrr­verandi þingmaður repúblikana segist ekki hafa boðið Julian Assange náðun fyrir hönd forsetans. Hann hafi gert það að eigin frumkvæði.

Julian Assange, stofnandi Wikileaks.
Julian Assange, stofn­andi Wikileaks. Mynd: EPA

Lögmenn Julian Assange, stofnanda Wikileaks, sögðu fyrir dómi í London í gær að Donald Trump hefði boðist til að náða Assange gegn því að hann myndi segja að Rússland hefði ekki átt þátt í því að leka tölvu­póstum Demókrata­flokksins. Þessu hafnar fyrr­verandi þingmaður repúblikana sem lögmennirnir sögðu lykil­vitni í málinu.

Í næstu viku hefjast réttarhöld í London þar sem Assange berst gegn framsals­kröfu frá bandarískum yfir­völdum sem gefið hafa út ákæru í átján liðum fyrir að birta stolin gögn.

Samkvæmt því sem lögmenn Assange segja kom þing­maðurinn Dana Rohrabacher til London í ágúst árið 2017. Á meðan heim­sókninni stóð hitti hann Assange og bar honum þau skilaboð frá forsetanum að honum biðist náðun „eða aðra leið út“ ef Assange segði að Rússar „hefðu ekkert haft að gera með að leka“ á tölvu­póstum Demókrata­flokksins.

Í frétt Guardian um málið segir að nokkrum tímum eftir þessa yfir­lýsingu lögmannanna hafi Rohrabacher neitað því að hafa boðið náðun fyrir hönd forsetans. Hann hafi hins vegar sagt Assange að ef að hann gæti veitt upplýsingar og sönnunar­gögn um hver hefði í raun og veru látið hann hafa tölvu­póstana þá myndi hann óska eftir því að Trump myndi náða hann. „Á engum tíma­punkti bauð ég samning fyrir hönd forsetans og ég sagði heldur ekki að ég væri [að hitta Assange] fyrir hönd forsetans,“ segir Rohrabacher.

Hvíta húsið hefur staðfest að í september árið 2017 hafi Rohrabacher hringt í John Kelly, starfsmanna­stjóra, til að tala við hann um mögulegt samkomulag við Assange. Kelly hafi hins vegar ekki komið þeim skila­boðum áleiðis til Trumps. Þessa atburðarás stað­festir Rohrabacher.

Hann segist hafa sagt honum að Assange myndi veita upplýsingar um tölvu­póstana gegn náðun. Hann hafi hins vegar engin viðbrögð fengið. „Jafnvel þó að mér hafi ekki tekist að koma þessum skila­boðum til forsetans þá hvet ég hann ennþá til að náða Julian Assange sem er sannur uppljóstrari okkar tíma.“

Ákærum skellt á Assange

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, fjallar um fréttirnar á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. „Gott er hér að hafa í huga samhengið. Það er lagt fram boð frá Trump um að ef blaða­maður opinberi heimildar­mann fái hann náðun eða milda meðferð. Þegar því er hafnað er sett vinna á fullt við að skella ákærum á Assange á grund­velli njósna­löggjafar og vinna að því að ná honum út úr sendiráði Ekvadors í járnum.“

Wikileaks birti tölvu­pósta Hillary Clinton, forseta­fram­bjóðanda demókrata, árið 2016, aðeins nokkrum vikum fyrir kosningarnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár