Havila tapaði 23 milljörðum í fyrra - Íslensku bankarnir búnir að færa niður lán

Norska skipa­félagið Havila Shipping ASA tapaði samtals rúmlega 1,5 milljarði norskra króna á árinu 2015, eða um 23 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Havila sem birtur var í gær. Tapið er að stærstu leyti til komið vegna þess að virði flota Havila, sem telur 28 skip, var fært niður um 21 milljarð króna. Félagið samdi við helstu lána­drottna sína um endur­skipulagningu á skuldum sínum í lok síðasta árs, en eigendur skulda­bréfa sem Havila hefur gefið út, höfnuðu þeim áformum í síðasta mánuði. Því hafa stjórn­endur og aðal­eigendur Havila sest aftur að samnings­borðinu með kröfu­höfum til að reyna að komast að nýju samkomu­lagi. Á meðan greiðir félagið ekkert af skuldum sínum og ljóst er að það rambar á barmi gjald­þrots. Norskir grein­endur telja að Havila eigi laust fé til að reka sig fram á haust.

Á meðal kröfuhafa Havila eru tveir íslenskir bankar, Íslands­banki og Arion banki. Íslands­banki tók þátt í sjö milljarða króna sambankaláni til félagsins sem veitt var í lok árs 2013. Í ársreikningi bankans fyrir árið 2015 kom fram að hann hefði hefði bókað virðis­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyrir­tækja sem þjónusta olíu­iðnaðinn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að annars vegar að lánum til Havila og hins vegar til íslenska félagsins Fáfnis Offshore. Í reikningnum kom fram að eitt prósent af útlána­safni bankans var til fyrir­tækja sem þjónusta olíu­iðnaðinn. Alls voru útlán til viðskipta­vina 665,7 milljarðar króna um síðustu áramót og því námu lán til geirans tæpum sjö milljörðum króna. Íslands­banki vill ekki gefa upp hversu mikið bankinn hefur fært umrædd lán niður.

Arion banki lánaði Havila 4,5 milljarða króna í júlí 2014. Í ársreikningi bankans fyrir árið 2015 var framkvæmd verulega varúðar­niðurfærsla til erlendra fyrir­tækja í þjónustu­samstarfsemi tengdri olíuleit í kjölfar erfið­leika á þeim markaði, á síðasta ársfjórðungi ársins 2015. Um er að ræða lánið sem bankinn veitti Havila. Ekki er tilgreint sérstak­lega í ársreikningi Arion banka, sem birtur var í síðustu viku, um hversu mikið lánið til Havila var fært niður en þar kemur hins vegar fram að hrein virðis­breyting lána var 3,1 milljarður króna á árinu. Í afkomu­tilkynningu Arion banka sagði fram að niður­færslurnar séu að mestu vegna lánsins til Havila og á lánum sem bankinn yfirtók frá AFL –spari­sjóði á árinu 2015.

Samkvæmt ársreikningi voru lánin sem komu frá AFLi færð niður á öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Um þriggja milljarða króna varúðar­niðurfærsla var færð á efnahags­reikning bankans á fjórða ársfjórðungi. Sú niður­færsla er því að mestu leyti vegna lánsins til Havila og ljóst að bankinn reiknar með miklum afföllum vegna þess.

Svokallaður „spot-markaður“ vegna þjónustu við olíuleit í sjó, þar sem Havila starfar, hefur hrunið á undan­förnum misserum samhliða lækkandi heims­markaðs­verði á olíu. Það var 115 dalir í júlí 2014 en er nú 34 dalir. Til að olíuleit í Norðursjó geti borgað sig þarf heims­markaðs­verðið á olíu að vera að minnsta kosti 60 dalir á tunnu, eða nánast tvöfalt það sem það er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár