Hagnaður Arion banka nam tæplega 50 milljörðum í fyrra

Á hverjum degi árs­ins í fyrra hagn­að­ist Arion banki að með­al­tali um 137 millj­ónir króna, sam­kvæmt upp­gjöri bank­ans fyrir árið í heild. Sala eigna hafði mikil áhrif á efna­hag bank­ans.

Hagnaður Arion banka á árinu 2015 nam 49,7 millj­örðum rkóna, sam­an­borið við 28,7 millj­arða árið 2014. Það er lang­sam­lega besta afkoma bank­ans frá stofnun hans, haustið 2008, en hagn­aður nemur tæp­lega 137 millj­ónum á hverjum degi.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka segir að upp­gjörið lit­ist meðal ann­ars af stórum úrlausn­ar­málum. „Afkoma Arion banka á árinu 2015 ber þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangs­mikil úrlausn­ar­mál sem vörð­uðu mikla hags­muni fyrir bank­ann. Fyrst og fremst er um að ræða sölu bank­ans á hlutum í fimm félögum: Reitum fast­eigna­fé­lagi hf., Eik fast­eigna­fé­lagi hf., Símanum hf., alþjóð­lega drykkj­ar­fram­leið­and­anum Refresco Gerber og Bakkavor Group Ltd. Öll voru félögin skráð í kaup­höll hér á landi eða erlendis, nema eign­ar­hlut­ur­inn í Bakkavor Group sem var seldur í kjöl­far sölu­ferlis í umsjón Barclays bank­ans. Þannig nam hagn­aður Arion banka á árinu 2015 49,7 millj­örðum króna eftir skatta sam­an­borið við 28,7 millj­arða króna á árinu 2014. Arðsemi eigin fjár var 28,1% sam­an­borið við 18,6% árið 2014,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hagnaður af reglu­legri starf­semi nam 16,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 12,7 millj­arða árið 2014, eins og sjá má í árs­reikn­ingi bank­ans.

Heild­ar­eignir námu í árs­lok 2015 rúm­lega þús­und millj­örðum króna sam­an­borið við 933,7 millj­arða króna í árs­lok 2014 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 192,8 millj­örðum króna í árs­lok og hafði hækkað um 20 pró­sent milli ára.

Hagnaður á fjórða árs­fjórð­ungi nam 24,3 millj­örðum króna og eykst veru­lega milli ára. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til virð­is­hækk­un­ar­innar á eign­ar­hluta í Bakkavor Group Ltd.

Umtals­verðar virð­is­breyt­ingar urðu á lána­bók bank­ans á árinu. Nið­ur­færslur tengj­ast að mestu lánum til erlendra félaga í þjón­ustu tengdri olíu­leit og lánum sem bank­inn yfir­tók frá AFL – spari­sjóði á árinu, segir til­kynn­ingu. Er þar meðal ann­ars vitnað sér­stak­lega til lána til norska félags­ins Havila Shipping ASA, sem nú þegar hefur fært niður skipa­flota sinn um 21 millj­arð króna. Ekki kemur nákvæm­lega fram hversu mikið útlánatapið er vegna þessa.

Hækkanir tengj­ast að mestu upp­greiðslu lána, bæði ein­stak­linga í tengslum við leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar og fyr­ir­tækja í tengslum við end­ur­skipu­lagn­ingu og sölu.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans í lok árs­ins 2015 var 24,2 pró­sent en var 26,3 pró­sent í árs­lok 2014. Lækkunin er einkum til­komin vegna arð­greiðslu að fjár­hæð 12,8 millj­arðar króna og fyr­ir­fram­greiðslu á víkj­andi lánum frá rík­inu að fjár­hæð 20 millj­arðar króna. 

Íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut í Arion banka, en kröfu­hafar Kaup­þings afgang­inn. Bankinn er í sölu­ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár