Arion banki færir niður lán til Havila um milljarða króna

Útrás íslenskra banka í norska olíu­geir­ann virð­ist ætla að enda með millj­arða tapi tveimur árum eftir að hún hófst. Arion banki færir niður veru­lega fjár­hæð vegna lána til Havila.

Arion banki færði veru­lega var­úð­ar­nið­ur­færslu á lán til erlendra fyr­ir­tækja í þjón­ustu­starf­semi tengdri olíu­leit, í kjöl­far erf­ið­leika á þeim mark­aði, á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015. Um er að ræða lán sem bank­inn veitti norska félag­inu Havila Shipping ASA í júlí 2014 upp á 4,5 millj­arða króna. Ekki er til­greint sér­stak­lega í árs­reikn­ingi Arion banka, sem birtur var í gær, um hversu mikið lánið til Havila var fært niður en þar kemur hins vegar fram að hrein virð­is­breyt­ing lána var 3,1 millj­arður króna á árinu. Í afkomutil­kynn­ingu Arion banka kemur fram að nið­ur­færsl­urnar séu að mestu vegna láns­ins til Havila og á lánum sem bank­inn yfir­tók frá AFL –spari­sjóði á árinu 2015.

Samkvæmt árs­reikn­ingi voru lánin sem komu frá AFLi færð niður á öðrum árs­fjórð­ungi síð­asta árs. Um þriggja millj­arða króna var­úð­ar­nið­ur­færsla var færð á efna­hags­reikn­ing bank­ans á fjórða árs­fjórð­ungi. Sú nið­ur­færsla er því að mestu leyti vegna láns­ins til Havila og ljóst að bank­inn reiknar með miklum afföllum vegna þess.

[adspot]

Lánuðu milljarða til Havila á síðustu tveimur árum

Íslenskir bankar hafa ekki verið mikið í þvi að lána til erlendra fyr­ir­tækja frá hruni, enda bundnir í höftum og að langstærstu leyti fjár­magn­aðir með inn­lánum almenn­ings sem færðir voru til þeirra með handafli neyð­ar­lag­anna haustið 2008.

Í lok árs 2013 barst hins vegar til­kynn­ing um að Íslands­banki hefði tekið þátt í rúm­lega sjö millj­arða króna sam­banka­láni til Havila. Nokkrum mán­uðum síðar til­kynnti Arion banki að hann hefði sömu­leiðis lánað norska félag­inu umtals­verða fjár­hæð, um 4,5 millj­arða króna. Óljóst er hvað olli því að norskt félag á mark­aði sem hafði gengið mjög vel árum saman fóru að leita til íslenskra banka til að fá fjár­mögnun. Vextir eru að jafn­aði lægri í Noregi en hér­lendis þar sem norskir bankar geta fjár­magnað sig á alþjóða­mörk­uðum á hag­stæð­ari kjörum en íslenskir bankar.

Havila, sem á 27 skip sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, hefur verið eitt af leið­andi félögum í geir­anum á und­an­förnum árum. Havila rambar nú á barmi gjald­þrots og er í við­ræðum við kröfu­hafa sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum. Félagið færði niður virði skipa­flota síns fyrr í þessum mán­uði um 21 millj­arð króna. Það mun birta árs­upp­gjör sitt í næstu viku og þá kemur í ljós hvernig rekstur þess gekk á síð­asta ári.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur fallið úr um 115 dölum á tunnu í tæpa 32 dali frá sumr­inu 2014. Til að vinnsla á olíu í Norð­ur­sjó borgi sig er talið að verðið þurfi að vera um 60 dalir á tunnu.

Bankarnir vilj ekki upplýsa um tap á lánum

Íslands­banki birti árs­reikn­ing sinn fyrir árið 2015 á þriðju­dag. Þar kom fram að bank­inn hefði bókað virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að ann­ars vegar að lánum til Havila og hins vegar til íslenska félags­ins Fáfnis Offshore. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­sent af útlána­safni bank­ans var til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Alls voru útlán til við­skipta­vina 665,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og því námu lán til geirans tæpum sjö millj­örðum króna. Íslands­banki vill ekki gefa upp hversu mikið bank­inn hefur fært umrædd lán niður. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um stöðu Fáfnis og lán íslenskra banka til Havila á síð­ustu vikum.

Arion banki vill ekki gefa upp hversu mikið bank­inn hefur fært niður lán til Havila. Hann tjáir sig ekki um mál­efni ein­stakra við­skipta­vina. Í árs­reikn­ingi hans segir hins vegar: „Arion banki hefur ekki farið var­hluta af því ástandi sem nú ríkir á alþjóð­legum olíu­mark­aði en bank­inn hafði lánað nokkra fjár­hæð til þjón­ustu­fyr­ir­tækja í þessum iðn­aði. Heild­ar­um­fang þess­ara lána var innan við 1% af lánum til við­skipta­vina og hefur bank­inn fært við­eig­andi var­úð­ar­nið­ur­færslu vegna þeirra.“

Útrásin í norska olíuiðnaðinn orðin að pólitísku hitamáli

Útrás íslenskra banka í norska olíu­iðn­að­inn, og sér­stak­lega fjár­fest­ingar þeirra og íslenskra líf­eyr­is­sjóða í Fáfni og Havila, varð að póli­tísku máli í gær þegar Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, gerði hana að umtals­efni á Alþingi. Frosti lýsti yfir áhyggjum sínum af þess­ari útrás. Það sé stefna þess­ara banka að fara í aðra útrás og fjár­festa erlendis, meðal ann­ars á meðan öll þjóðin sé í höftum. Þá sé ekki verið að dreifa áhætt­unni heldur þjappa henni saman, „inn í ein­hvern geira sem við höfum ekk­ert mikið vit á, norskan olíu­iðnað.“

Hann kall­aði í kjöl­farið eftir því að Íslands­banka verði sett ný eig­enda­stefna sem tak­marki mjög mögu­leika bank­ans til þess að fara í útrás til útlanda. Íslands­banki sé orð­inn alfarið rík­is­banki og gera verði við hann nýjan samn­ing um þetta sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár