Íslandsbanki gefur ekki upp hversu mikið lán til Havila voru færð niður

Íslands­banki gefur ekki upp hversu mikið bank­inn hefur fært niður virði útlána til aðila í þjón­ustu við olíu­iðn­aði á hafi. Þetta kom fram í máli Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra bank­ans, og Sverris Arnar Þor­valds­sonar, fram­kvæmda­stjóra áhættu­stýr­ingar hans, á upp­gjörs­fundi með fjöl­miðlum í dag vegna árs­reikn­ings bank­ans fyrir árið 2015. Sverrir sagði það vera „von­brigði að þetta skyldi þró­ast á þennan veg,“ og átti þar við stöð­una á mark­aði fyrir aðila í þjón­ustu við ólíu­iðnað, aðal­lega í Noregi.

Í árs­reikn­ingi Íslands­banka sem birtur var í morgun kom fram að bank­inn hefði bókað virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að lánum til norska skipa­fé­lags­ins Havila Shipping ASA og íslenska félags­ins Fáfnis Offshore. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­sent af útlána­safni bank­ans var til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn. Alls voru útlán til við­skipta­vina 665,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og því ljóst að lán til geirans nema tæpum sjö millj­örðum króna.

Tók þátt í sjö milljarða lánveitingu til Havila

Havila, sem á 27 skip sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, hefur verið eitt af leið­andi félögum í geir­anum á und­an­förnum árum. Havila rambar nú á barmi gjald­þrots og er í við­ræðum við kröfu­hafa sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum. Félagið færði niður virði skipa­flota síns fyrr í þessum mán­uði um 21 millj­arð króna. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur fallið úr um 115 dölum á tunnu í 32 dali frá sumr­inu 2014. Til að vinnsla á olíu í Norð­ur­sjó borgi sig er talið að verðið þurfi að vera um 60 dalir á tunnu.

Íslands­banki og Arion banki eru báðir á meðal lán­veit­enda Havila. Í júlí 2014 lán­aði Arion banki Havila 300 millj­ónir norskra króna, um 4,5 millj­arða króna. Bankinn sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í síð­ustu viku að það væri óvíst hvort lánið myndi inn­heimt­ast. Arion banki birtir upp­gjör sitt fyrir árið 2015 á morgun, mið­viku­dag, og þá kemur í ljós hvort bank­inn hafi fært lánið niður í bókum sínum.

Íslands­banki tók þátt í sam­banka­láni til Havila upp á alls 475 millj­ónir norskra króna, rúm­lega sjö millj­arða króna, nokkrum mán­uðum áður en Arion banki lán­aði félag­inu. Það lán hefur nú verið fært niður í bókum Íslands­banka.

Fáfnis-verkefnið einnig í uppnámi

Íslands­banki tók einnig þátt í fjár­mögnun á skipum sem íslenska félagið Fáfnir Offshore létu smíða fyrir sig á und­an­förnum árum. Eina skipið sem er full­búið og í rekstri er Pol­ar­sys­sel, sem kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unnar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða til tíu ára um birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit. Sá samn­ingur gengur út á að sýslu­manns­emb­ættið hefur skipið til umráða að lág­marki í 180 daga á ári, eða sex mán­uði. Hina sex mán­uði árs­ins stóð til að nota skipið í verk­efni tengdum olíu- og gas­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó.

Það mun ráð­ast í febr­úar hvort nýr samn­ingur Fáfnis Offshore við sýslu­mann­inn á Sval­barða, sem snýst um að fyr­ir­tækið sinni verk­efnum fyrir hann í níu mán­uði á ári í stað sex, muni halda. Samn­ing­ur­inn skiptir miklu máli fyrir Fáfni Offshore, sem er að nán­ast öllu leyti í íslenskri eigu.

Kjarninn greindi frá því í byrjun des­em­ber 2015 að afhend­ing á Fáfni Viking, skipi í eigu Fáfnis Offshore, hafi verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars 2016 en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar Hayvard Ship Technologies AS mun afhend­ing þess frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017. Ástæða frest­un­ar­innar á afhend­ingu á nýja skip­inu sé ein­föld: ástandið á olíu­mark­aði hefur leitt til þess að engin verk­efni séu til staðar fyrir skip eins og Fáfni Viking.

Nokkrum dögum síðar var Stein­grimi Erlings­syni sagt upp störfum sem for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Heim­ildir Kjarnans herma að miklir sam­starfs­erf­ið­leikar hafi verið milli stjórnar Fáfnis Offshore og Stein­gríms í aðdrag­anda upp­sagnar hans.

Höfnuðu tilboði í Fáfni

Íslands­banki er ekki bara lán­veit­andi Fáfnis, heldur lika á meðal eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins í gegnum fram­taks­sjóð­inn Akur II. DV greindi frá því nýverið að Stein­grímur Erlings­son, fyrrum for­stjóri og stofn­andi Fáfnis Offshore, hefði boðið í hlut tveggja fram­taks­sjóða, Akurs og Horns II, í Fáfni Offshore í jan­úar. Tilboðið, sem rann út í byrjun síð­ustu viku, var sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans upp á um tíu pró­sent af þeirri upp­hæð sem sjóð­irnir tveir settu upp­haf­lega í Fáfni Offshore, sem nam um tveimur millj­örðum króna. Því hefðu fram­taks­sjóð­irnir tekið á sig gríð­ar­legt tap ef þeir hefðu sam­þykkt til­boðið. Það gerðu þeir ekki.

Stærstu eig­endur umræddra fram­taks­sjóða eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­bank­inn, eiga einnig hlut í þeim ásamt Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár