Einn æðsti maður kaþólsku kirkjunnar ákærður

Kaþólska kirkjan hefur verið staðin af því að hylma yfir níðings­verk presta innan kirkjunnar víða um heim. Eftir að rann­sóknarnefnd lauk störfum í Ástralíu komst upp um gríðar­lega umfang kyns­ferð­is­brota sem prestar höfðu framið.

George Pell kardináll
George Pell kar­dináll

Einn æðsti maður kaþólsku kirkjunnar, ástralski kardinálinn George Pell, hefur verið ákærður fyrir kynferðis­brot gegn börnum í heima­landi sínu. Brotin voru framin fyrir tæpum fjórum áratugum. Pell er fjármála­stjóri Vatíkansins og einn nánasti banda­maður Frans páfa. Hann er þriðji æðsti fulltrúi Páfagarðs, á eftir utan­ríkis­ráðherranum og páfanum sjálfum.

Pell er ákærður fyrir að brjóta gegn börnum í borginni Ballarat í Ástralíu á áttunda áratug síðustu aldar. Ástralska lögreglan segir að brotin sem hann er ákærður fyrir séu nokkur, og brota­þolarnir sömuleiðis, að því er fram kemur á vef Reuters. Hann á að mæta fyrir dómara í Melbourne 18. júlí.

Eftir að rann­sóknarnefnd í Ástralíu lauk störfum, árið 2016, komst meiri kraftur í rann­sóknir á kynferðis­brotum presta innan kaþólsku kirkjunnar í Ástralíu, en umfang reyndist miklu meira en nokkurn óraði fyrir. Samkvæmt skýrslu rann­sóknar­nefndarinnar voru fórnar­lömb níðings­verka presta kaþólsku kirkjunnar í Ástralíu 4.444 talsins, var næstum 10 prósent allra presta sem höfðu brotið af sér. Brotin voru fram í meira en þúsund kirkjum og skólum, á vegum kaþólsku kirkjunnar, og höfðu glæpirnir yfirbragð kerfis­bundinnar starfsemi, að því rann­sóknar­nefndin upplýsti.

Meðal­aldur fórnarlambananna var 10,5 ár fyrir stúlkur og 11,5 ár fyrir drengi. Í tilkynningunni frá nefndinni, sagði hún að kaþólska kirkjan hefði neitað að láta af hendi upplýsingar til nefndarinnar og ekki sýnt neinn vilja til að upplýsa um hið sanna í þeim málum sem nefndin spurði út í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár