Áttföld eftirspurn eftir bréfum í Play

Hlutafjár­útboði Play sem hófst í gærmorgun lauk klukkan 16 í dag. Alls bárust áskriftir fyrir hlutum fyrir 33,8 milljarða króna, eða margfalt umfram það sem var til sölu.

Alls bárust tilboð upp á 33,8 milljarða króna í hlutabréf í flug­félaginu Play í útboði sem hófst í gær og lauk klukkan 16 í dag. Til sölu voru hlutir fyrir 4,3 milljarða króna. Því var umfram­eftirspurn eftir bréfum áttföld.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play til Kaup­hallar Íslands en félagið verður skráð á First North markaðinn í kjölfar hlutafjár­útboðsins.

Play flaug sitt fyrsta áætlunar­flug í gær, fimmtudag, til London.

Í útboðs­lýsingu félagsins kom fram að þessi fjár­mögnun sem sótt var með útboðinu muni hjálpa lausafjár­stöðu þess enn frekar, en Play segist nú þegar hafa náð að safna tæpum sjö milljörðum króna í fjár­mögnun.

Búist er við að almenn viðskipti með hluti í Play hefjist föstu­daginn 9. júlí.

Í útboðs­lýsingu sagði að Play búist við því að selja selja jafnmörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjögurra ára. Það stefnir á að hefja flug til Banda­ríkjanna næsta vor, en mun halda starfsmanna­kostnaði í lágmarki með því að láta starfs­menn sína vinna lengur en starfs­menn annarra flug­félaga og taka færri frídaga en starfs­menn WOW air tóku.

Hægt er að lesa frétta­skýringu Kjarnans um útboðið hér.

Arctica Finance hafði umsjón með hlutafjár­útboðinu og Arion banki var söluaðili ásamt Arctica Finance. Stjórn Play mun nú yfirfara þær áskriftir sem bárust í útboðinu og taka afstöðu til þeirra. Áætlað er að niður­staða varðandi úthlutun liggi fyrir eigi síðar en í lok dags 28. júní.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir í tilkynningu að það hafi verið mjög ánægjulegt að sjá skráningar frá almenningi og ekki síður lífeyris­sjóðum í eigu almennings. „Í þokkabót fáum við svo afléttingu sóttvarnar­takmarkana á miðnætti. Við getum því sennilega leyft okkur smá bjartsýni á fram­haldið enda held ég að sjaldan hafi flugfélag verið eins vel undirbúið, eða jafn vel fjár­magnað, til að nýta þau tækifæri sem gefast. Við sjáum ekki heldur annað en að áhugi fjárfesta endur­spegli þessa bjartsýni sem við finnum fyrir og það sé einhugur hjá þjóðinni gagnvart því að byggja upp ferða­þjónustuna á Íslandi á ný, en við hjá PLAY ætlum okkur að leika risastórt hlutverk þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár