Stjórnarformaður, forstjóri og stjórnarmaður í Play til rannsóknar hjá yfirvöldum

Tveir af fimm stjórnar­mönnum Play eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum hérlendis. Það er forstjóri flug­félagsins líka. Grunur er um að Play hafi hagnýtt sér af­ritaðar flug­rekstrar­hand­bækur WOW air við umsókn um flug­rekstrar­leyfi.

Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður Play, Birgir Jónsson, forstjóri félagsins, og María Rúnarsdóttir, stjórnarmaður í Play.
Einar Örn Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Play, Birgir Jónsson, for­stjóri félags­ins, og María Rún­ars­dóttir, stjórn­ar­maður í Play. Mynd: Samsett/Play

Í útboðs­gögnum Play kemur fram að bæði Birgir Jónsson, forstjóri flug­félagsins, og Einar Örn Ólafsson, stjórnar­formaður og næst stærsti einstaki hluthafi félagsins, séu til rann­sóknar hjá embætti héraðs­saksóknara. Birgir hefur verið til rann­sóknar frá því í september 2018 vegna fjármagns­tekna sem hann aflaði á árum áður og hvort að þær tekjur hafi fallið til eftir að hann færði heimilis­festi sitt frá Rúmeníu til Íslands árið 2013. Héraðs­saksóknari rannsakar auk þess málið og er þess sérstak­lega getið í skráningar­lýsingu að málið sé enn opið hjá því embætti.

Í tilfelli Einars Arnar er um að ræða hið svokallaða Skeljungsmál, sem á rætur sínar að rekja til þess að Íslands­banki kærði Einar og fjóra aðra einstaklinga til embættis sérstaks saksóknara fyrir fimm árum síðan vegna gruns um lögbrot í tengslum við kaup og sölu á hlutum í Skeljungi fyrir og eftir banka­hrunið. Einar Örn var starfs­maður Glitnis banka, fyrirrennara Íslands­banka, þegar salan átti sér stað og var síðar ráðinn forstjóri Skeljungs af nýjum eigendum félagsins. Á meðal þeirra brota sem grunur er um að hafi verið framin eru umboðs­svik. Samkvæmt heimildum Kjarnans er rannsókn málsins langt komin og búist er við því að niður­staða um hvort ákært verði í málinu eða það verði fellt niður liggi fyrir innan tíðar.

Í skráningar­lýsingu Play kemur einnig fram að María Rún Rúnars­dóttir, sem situr í stjórn Play, hafi verið til skatt­rannsóknar frá því á síðasta ári vegna skatt­skila hennar á árunum 2011 og 2012.

Kannað hvort leyfi Play byggi á stolnum gögnum

Því eru tveir af fimm stjórnar­mönnum Play og forstjóri félagsins í einhverskonar rannsókn hjá yfir­völdum sem stendur.

Til viðbótar var greint frá því á forsíðu Frétta­blaðsins í morgun að fyrirtæki Michelle Ballarin, USAerospace Partners, sem keypti hluta eigna WOW air eftir að það félag fór í þrot, hafi beðið um að tekin yrði skýrsla af alls ellefu manns sem tengdust WOW air. Tilgangur þessa er að fá á hreint hvað hafi orðið um flug­rekstrar­handbækur félagsins, sem eru að mati kaup­andans ein verð­mætasta eignin sem WOW air átti og forsenda þess að flugfélag geti fengið leyfi sem flug­rekandi hjá Samgöngu­stofu. Þessar handbækur var hins vegar hvergi að finna í þeim gögnum sem fyrirtæki Ballarin fékk afhent.

Á meðal þeirra sem USAerospace Partners vill að tekin verði skýrsla af eru Arnar Már Magnússon, Sveinn Ingi Steinþórsson og Þóroddur Þóroddsson sem allir voru lykil­starfsmenn hjá WOW air. Þeir stóðu allir að stofnun Play og Arnar, sem situr í framkvæmda­stjórn Play í dag, var fyrsti forstjóri félagsins.

Á vef Frétta­blaðsins í dag er svo fjallað um tölvupóst sem Sveinn Andri Sveinsson, skipta­stjóri þrotabús WOW air, hafi sent til Samgöngu­stofu 3. júní síðastliðinn þar sem hann segist hafa fengið upplýsingar um að stofn­endur Play ​hafi við um­sókn um flug­rekstrar­leyfi hag­nýtt sér og lagt fram í eigin nafni af­ritaðar flug­rekstrar­hand­bækur WOW air.

Ætla að safna yfir fjórum milljörðum

Hlutafjár­útboð Play hefst á fimmtudag og stendur yfir til loka vinnudags á föstudag. Stefnt er að því að safna 4-4,4 milljörðum króna og skrá félagið í kjölfarið á First North markaðinn.

Í útboðs­lýsingu félagsins kemur fram að þessi fjár­mögnun muni hjálpa lausafjár­stöðu þess enn frekar, en Play segist nú þegar hafa náð að safna tæpum sjö milljörðum króna í fjár­mögnun.

Búist er við að almenn viðskipti með hluti í Play hefjist föstu­daginn 9. júlí.

Í útboðs­lýsingu segir að Play búist við því að selja selja jafnmörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjögurra ára. Það stefnir á að hefja flug til Banda­ríkjanna næsta vor, en mun halda starfsmanna­kostnaði í lágmarki með því að láta starfs­menn sína vinna lengur en starfs­menn annarra flug­félaga og taka færri frídaga en starfs­menn WOW air tóku.

Hægt er að lesa frétta­skýringu Kjarnans um útboðið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár