Mynd: Play

PLAY opnar húddið

Samkvæmt útboðs­lýsingu PLAY hyggst flug­félagið selja jafnmörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjögurra ára. Félagið býst við að skila tapi á rekstri sínum í ár, en ná fimm milljarða króna hagnaði árið 2025.

Flug­félagið PLAY býst við að selja jafnmörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjögurra ára. Það stefnir á að hefja flug til Banda­ríkjanna næsta vor, en mun halda starfsmanna­kostnaði í lágmarki með því að láta starfs­menn sína vinna lengur en starfs­menn annarra flug­félaga og taka færri frídaga en starfs­menn WOW air tóku.

Þetta kemur fram í útboðs­lýsingu PLAY vegna fyrir­hugaðs útboðs þess á First North markaðinn í Kaup­höllinni í næstu viku. Kjarninn hefur áður fjallað um útboðið, en andvirði þess nemur rúmum fjórum milljörðum króna.

Fleiri tímar, færri frídagar og engir launastigar

PLAY býst við að minni kostnaður verði fólginn í rekstri félagsins miðað við önnur flugfélög sem fljúga yfir Atlantshafið. Þar nefnir félagið sérstak­lega starfsmanna­kostnað, sem það segist hafa náð að halda lágum með nýjum kjara­samningum við flugliða.

Hins vegar stendur í útboðs­lýsingunni að lítill starfsmanna­kostnaður sé ekki tilkominn vegna lægri launa, heldur sé dregið úr starfs­kjörum miðað við önnur flugfélög með öðrum hætti. Þar nefnir félagið til dæmis að flugtímar starfs­manna PLAY séu fleiri en gengur og gerist hjá evrópskum lággjalda­flugfélögum, þar sem flug­ferðirnar séu að meðaltali lengri.

Einnig bendir PLAY á að engin launa­stigi sé í boði fyrir starfs­menn félagsins, þeir hækki ekki í launum eftir því sem starfs­aldur þeirra hækkar. Launin séu frekar bundin við ábyrgð og vinnutíma starfs­mannanna. Þá ætlar fyrir­tækið sér heldur ekki að sjá um að keyra starfs­fólkið sitt á Leifsstöð úr Reykjavík líkt og Icelandair gerir.

Enn frekar segir PLAY að nýir starfs­menn félagsins fái 24 til 30 frídaga á hverju ári. Þetta er töluvert minna en fjöldi frídaga sem starfs­menn WOW fengu, en þar voru þeir á bilinu 36-38 dagar á ári.

Meira um kjaramál starfsmanna PLAY

Í útboðs­lýsingunni segir að heildar­laun óreyndra flug­freyja og flugþjóna að viðbættum dagpeningum muni nema 470 þúsund krónum á mánuði, eða 372 þúsund krónur eftir skatt. Fyrir reyndari starfs­menn muni heildar­launin nema 532 þúsund krónum á mánuði, eða 424 þúsund krónum eftir skatt.

Ameríkuflug í apríl 2022

Samkvæmt ferða­áætlun félagsins mun það einungis fljúga til áfanga­staða í Evrópu í ár og því fyrst og fremst sinna Íslendingum, auk erlendra ferða­manna sem hyggjast heimsækja landið.

Áætlunin mun svo breytast á næsta ári þegar PLAY byrjar að fljúga til Banda­ríkjanna, en þá hyggst félagið nota Leifsstöð sem miðstöð fyrir Norður-Atlantshafs­flug. Áætlað er að fyrsta Ameríku­flug félagsins verði í apríl á næsta ári.

Samkvæmt PLAY gerir stað­setning Íslands sem miðstöðvar fyrir Atlantshafs­flug félaginu kleift að nota smærri flugvélar í stað breiðþota, sem séu kostnaðar­samar í rekstri. Félagið segir að mikil samkeppni sé viðbúin á meðal flug­félaga í Norður-Atlantshafs­flugum og sé því mikilvægt að halda rekstrar­kostnaði í lágmarki.

Flug­félagið segist njóta góðs af lágu leigu­verði flugvéla vegna heims­faraldursins, en samkvæmt útboðs­lýsingunni hefur það tryggt sér þrjár vélar á fjórðungi lægra verði en þær voru á fyrir COVID. Búist er við því að flugvélar félagsins verði sex á næsta ári og tíu árið 2023. Innan fimm ára er svo búist við að flug­vélarnar verði orðnar 15 talsins, en til saman­burðar eru flugvélar Icelandair 39 talsins.

18-falt meiri sala á nokkrum árum

Félagið býst við að starfsemi þess í ár muni skila tapi upp að 15 milljónum Bandaríkja­dala, eða 1,8 milljarði íslenskra króna. Á næsta ári er svo gert ráð fyrir að reksturinn verði kominn réttum megin við núllið og skili tæpum hálfum milljarði króna í gróða. Á árunum 2023-2025 er svo búist við að hagnaður félagsins tífaldist og nái rúmum fimm milljörðum króna innan fjögurra ára.

Flugvélarnar sem PLAY hyggst nota eru af gerðinni Airbus A321neo, en hægt verður að nota þær í Norður-Atlantshafsflug.
Flug­vél­arnar sem PLAY hyggst nota eru af gerð­inni Airbus A321neo, en hægt verður að nota þær í Norður-Atl­ants­hafs­flug.

Útreikningar félagsins byggja á því að sæta­nýting muni aukast töluvert á næstu árum, úr 72 prósent í ár og upp í 89 prósent árið 2025. Einnig gerir félagið ráð fyrir því að olíuverð muni verða jafnhátt og það var á hápunkti sínum árið 2019 og að meðal­upphæð sem hver farþegi eyðir í hverri ferð muni hækka úr 20.500 kr. í ár upp í 22.400 kr. á næsta ári. Innan fimm ára verði svo kostnaðurinn kominn upp í 22.800 kr..

Býst við að ná umfangi WOW árið 2017 innan fjögurra ára

Búist er við sprengingu í rekstrar­umfangi félagsins á fyrstu árunum, miðað við áætlun þess um fjölda seldra flugsæta. Alls telur félagið að 143 þúsund sæti muni seljast í ár, en að salan verði rúmlega sex sinnum meiri á næsta ári og vaxa enn frekar á næstu árunum eftir það.

Alls telur flug­félagið að fjöldi seldra sæta muni 18-faldast á næstu fjórum árum og ná 2,7 milljónum árið 2025. Til saman­burðar ferðuðust 2,8 milljónir farþega með WOW air árið 2017, en þá var þriðjungur farþega um Leifsstöð að ferðast með flug­félaginu, líkt og kemur fram í Viðskipta­blaðinu.

PLAY áætlar að 545 starfs­menn vinni hjá félaginu eftir þrjú ár og að allt að 1.400 afleidd störf myndist vegna starfsemi þess. Félagið býst einnig við að flytja 440 þúsund ferðamenn hingað til lands árið 2024, eða um fimmtung af heildar­fjöldanum sem kom hingað árið 2019, sem myndu samtals eyða um 50 milljarða króna hérlendis. Þetta er um það bil tvöfaldur fjöldi ferða­manna sem WOW air kom með hingað til landsins árið 2018, þegar rekstur þess var sem umfangs­mestur.

Eignir félagsins munu einnig fjór­faldast á næstu fjórum árum, samkvæmt spám um stækkun efnahags­reiknings þess í útboðs­lýsingunni. Á hinn bóginn er búist við minni vexti í eigin fé, en talið er að það muni nema 72 milljónum Bandaríkja­dala í ár og 168 milljónum Bandaríkja­dala árið 2025. Þetta jafn­gildir aukningu eigin fjár úr 8,7 milljörðum króna í rúma 20 milljarða króna. Til saman­burðar nam markaðs­virði hlutafjár Icelandair 41 milljarði króna árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár