Útboð PLAY hefst 24. júní

Hlutafjár­útboð verður í flug­félaginu PLAY dagana 24. og 25. júní. Andvirði útboðsins nemur rúmum fjórum milljörðum króna.

Fyrir­hugað hlutafjár­útboð flug­félagsins PLAY hefst kl. 10:00 á fimmtudaginn í næstu viku og lýkur kl. 16:00 degi seinna. Þetta stað­festir Arctica Finance, sem sér um útboðið, í fjárfesta­tilkynningu sem birtist á vef Keldunnar fyrr í dag.

Samkvæmt tilkynningunni verða haldin tvö útboð með sitthvoru verð­bilinu. Í öðru útboði verður hægt að kaupa hluti á 18 krónur á hlut en í hinu verður verðið á bilinu 18-20 krónur á hlut. Boðnar verða til sölu tæpar 222 milljónir hluta í félaginu, sem þýðir að heildar­andvirði útboðsins mun nema 4-4,4 milljörðum íslenskra króna.

Í útboðs­lýsingu félagsins kemur fram að þessi fjár­mögnun muni hjálpa lausafjár­stöðu þess enn frekar, en PLAY segist nú þegar hafa náð að safna tæpum sjö milljörðum króna í fjár­mögnun.

Búist er við að almenn viðskipti með hluti í PLAY hefjist föstu­daginn 9. júlí. Arion banki verður söluaðili útboðsins ásamt Arctica Finance.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár