„Bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórnarandstöðu“

Inga Sæland gagnrýnir að frumvarp hennar um bann við blóð­merahaldi hafi einungis verið tekið einu sinni til umfjöllunar hjá atvinnu­veganefnd. Hún segir vont að upplifa valda­leysi í stjórnar­andstöðu þrátt fyrir að vinna eins og „alvöru hestur“.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland formaður Flokks fólksins gagnrýndi á þingi í gær, undir liðnum störf þingsins, að atvinnu­veganefnd hefði einungis fjallað einu sinni um frumvarp hennar til breytinga á lögum um dýra­velferð, þar sem bann við blóð­merahaldi á Íslandi er lagt til.

Hún benti á að um frum­varpið hefðu komið fram 129 umsagnir til þingsins, sem sé með því meira sem sjáist. Umsagnar­frestur rann út þann 17. janúar og Inga sagði að veita ætti þeim fjölmörgu sem sendu inn umsagnir tækifæri til þess að fylgja þeim eftir við atvinnu­vega­nefndina. Hins vegar hefði málið einungis verið einu sinni á dagskrá atvinnu­veganefndar, sem Stefán Vagn Stef­ánsson þingmaður Framsóknar­flokks leiðir.

Inga sagði „bágt að finna það hversu veikur maður er í stjórnar­andstöðu þó maður sé fanginn af vilja og vinni eins og ég veit ekki hvað – alvöru hestur – sem dregur alvöru þunga á eftir sér til að bæta stöðuna í samfélaginu“.

Búin að skipta sér inn í nefndina

Flokks­formaðurinn ætlar sér þó greini­lega að reyna að koma málinu frekar á dagskrá í atvinnu­veganefnd, því við upphaf þing­fundar í gær tilkynnti Birgir Ármannsson forseti Alþingis að Flokkur fólksins ætlaði að skipta um fulltrúa í nefndinni.

Inga sjálf kemur inn sem aðalmaður í stað Tómasar A. Tómassonar þingmanns flokksins, sem verður varamaður í nefndinni.

Segir hagsmunaaðila eflaust þrýsta á um að málið verði svæft

Inga gerir þetta mál að umtals­efni í pistli sínum í Morgun­blaðinu í dag. Þar segir hún að fyrir atvinnu­veganefnd liggi nú um 10 þingmál, sem þyki með minna móti og mála­fjöldinn geti því ekki réttlætt að „þetta mikilvæga mál fái ekki umfjöllun fyrir atvinnu­veganefnd“.

Í pistli sínum segir flokks­formaðurinn að hagsmuna­aðilar séu eflaust að þrýsta á „þingmenn stjórnar­flokkanna og hvetja þá til að svæfa málið í nefnd“ en segir Inga jafnframt að hún voni „að þingmenn taki ekki ákvörðun um þingmál út frá slíkum þrýstingi.“

„Það er sorglegt, ef það er virkilega svo, að ríkis­stjórnar­flokkarnir heykist á því að taka utan um mál sem þjóðin kallar eftir að fái þinglega meðferð. Ég skora á atvinnu­veganefnd og formann nefndarinnar, Stefán Vagn Stef­ánsson, að taka utan um málið og koma því þannig inn að Alþingi Íslendinga geti fjallað um málið og greitt um það atkvæði,“ skrifar Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blóðmerahald

AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upphafi til enda

Lyf úr meðgöngu­hormóni fylfullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæskilegu aukaverkanir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veiklaðir, fæðast gyltum á þýskum svínabúum. Blóðtakan hefur frá því í byrjun nóvember, eftir áminningu frá ESA, verið felld undir reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísinda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og svissnesku dýra­verndunar­samtökin sem rannsakað hafa iðnaðinn í fjögur ár.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár