Fréttamál

Blóðmerahald

Greinar

AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.

Myndband

AfhjúpunBlóðmerahald

Ný rann­sókn: Sparkað í höfuð og kvið blóð­mera

Þýsk og sviss­nesk dýra­vernd­un­ar­sam­tök, sem afhjúp­uðu illa með­ferð fyl­fullra hryssa í heim­ild­ar­mynd árið 2021, segja flest mál varð­andi vel­ferð dýr­anna enn til staðar í blóð­mera­haldi á Íslandi. Í nýrri rann­sókn varpa þau ljósi á ofbeldi gagn­vart mer­unum og aug­ljósa ang­ist þeirra við blóð­tök­una.

Myndband10 mín. lestur

ViðtalBlóðmerahald

Ísteka: Reynslu­leysi dýra­lækna lík­leg­asta skýr­ingin

Íslenskir dýra­læknar hættu störfum hjá Ísteka eftir nei­kvæða umfjöllun um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þrír pólskir dýra­læknar, sem enga reynslu höfðu af blóð­töku úr fyl­fullum hryssum, voru ráðnir. Þeir fengu þjálfun hjá Ísteka en reynslu­leysi er að mati fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins lík­leg­asta orsök þess að átta hryssur drápust í tengslum við blóð­tök­una í fyrra.
FréttirBlóðmerahald

Átta fyl­fullar hryssur drápust í tengslum við blóð­töku

Sér­greina­dýra­læknir hrossa hjá MAST segir það „enga kata­st­rófu“ þótt átta fyl­fullar hryssur hafi dáið eftir blóð­töku á vegum Ísteka síð­asta sumar. Staðfest þykir að að minnsta kosti ein hryssa dó vegna stung­unnar og blæddi út og telja bæði MAST og Ísteka reynslu­leysi dýra­lækn­is­ins mögu­lega um að kenna. Hinar fund­ust dauðar 2–3 dögum eftir blóð­tök­una.

9 mín. lestur

FréttirBlóðmerahald

Lögregla segi ósatt um blóð­mera­rann­sókn

Dýra­vernd­un­ar­sam­tök neit­uðu aldrei að afhenda lög­reglu á Íslandi mynd­bönd af meintu dýra­níði í blóð­mer­ar­haldi á Íslandi. Stað­hæf­ingar lög­reglu um að þess vegna hafi rann­sókn á blóð­mera­haldi verið hætt, eru rangar. Þetta segir tals­maður þýskra dýra­vernd­ar­sam­taka og gögn um sam­skipti sam­tak­anna við íslensk yfir­völd styðja sög­una. Samtökun íhuga að kvarta undan sleif­ar­lagi lög­reglu í mál­inu.

Myndband

Mest lesið undanfarið ár