Skeljungur undirritar viljayfirlýsingu um sölu og dreifingu á rafeldsneyti

Tvö dótt­ur­fé­lög fjár­fest­inga­fé­lags­ins SKEL ætla í sam­starf við danskan sjóð um mögu­leg kaup og dreif­ingu á raf­elds­neyti sem hann stefnir á að fram­leiða á Reyð­ar­firði.

Elds­neyt­is­sal­inn Skelj­ungur og Gallon, sem rekur birgða­stöðvar fyrir elds­neyti á Íslandi, hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu við danska sjóð­inn CI Energy Transition Fund I um að skoða mögu­leika fyr­ir­tækj­anna tveggja á að kaupa raf­elds­neyti af sjóðnum og dreifa því og selja, meðal ann­ars til íslenskra not­enda. Bæði Skelj­ungur og Gallon eru að öllu leyti í eigu fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins SKEL, sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­markað.

CI Energy Transition Fund I er nýr sjóður í eigu Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) og er stærsti sjóður heims sem er til­eink­aður fjár­fest­ingum í verk­efnum tengdu grænu raf­elds­neyti. CIP stefnir á fram­leiðslu raf­elds­neytis í Orku­garði Aust­ur­lands á Reyð­ar­firði, en orku­garð­ur­inn er sam­starfs­vett­vangur um nýt­ingu grænna tæki­færa á Aust­ur­landi. Markmið hans er að stuðla að auk­inni verð­mæta­sköpun og byggja upp þekk­ingu á orku­skiptum á svæð­inu.

Um er að ræða fyrsta vilja­yf­ir­lýs­ingu þess­arar gerðar sem gerð hefur verið á Íslandi.

Í til­kynn­ingu frá Skelj­ungi vegna þessa segir að mark­mið stjórn­valda um orku­skipti í sjáv­ar­út­vegi og skipa­flutn­ingum náist aðeins ef skipa­fé­lög og útgerðir geti skipt út jarð­efna­elds­neyti fyrir aðra og umhverf­is­vænni orku­gjafa. „CIP, Skelj­ungur og Gallon hafa trú á því að raf­elds­neyti sé leiðin til að hætta losun koltví­sýr­ings í sigl­ingum. Til að það tak­ist þarf inn­viði, sem sumir hverjir eru til staðar, en aðra þarf að byggja frá grunni.“

Þórður Guð­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Skelj­ungs, segir á sama stað að fyr­ir­tækið sé stolt að ger­ast sam­starfs­að­ilar CIP í þeirri veg­ferð sem sjóð­ur­inn sé í.

SKEL fjár­fest­inga­fé­lag hét áður Skelj­ungur í 93 ár. Nafni og til­gangi félags­ins var breytt í byrjun þess. Streng­­ur, eign­­ar­halds­­­fé­lag sem stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son fer fyr­ir, á 50,1 pró­­sent hlut í félag­inu og hefur því tögl og hagldir innan þess. SKEL átti 23,5 millj­arða króna í eigið fé í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Í fjár­festa­kynn­ingu SKEL vegna upp­gjörs þriðja árs­fjórð­ungs var sér­stak­lega fjallað um orku­skipti og inn­viði. Þar var gengið út frá því að það þyrfti að fram­leiða 16 TWst af raf­orku á ári til við­bótar við þær 20 TWst sem nú eru fram­leiddar hér­lendis til að ná fullum orku­skiptum og sagt að heildar umfang fjár­fest­inga, fjár­fest­ing­ar­þarfar í við­haldi og efl­ingu inn­viða vegna þessa væri yfir 1.000 millj­arða króna. „Ljóst að hvert svo sem hlut­fallið af þess­ari fjár­fest­ingu verður, þá er þörfin fyrir þjón­ustu­að­ila, orku og tæki umtals­verð og lík­leg til að aukast Orku­skipti í stærri tækjum, svo sem vinnu­vélum og vöru­flutn­inga­bif­reiðum, verða lík­lega hrað­ari en raf­bíla­væð­ingin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár