Bára býr í Brussel og segir ástandið „hræðilega sorglegt“

Bára Sig­fús­dóttir dans­höf­undur býr í Brussel og er slegin yfir atburðum dags­ins.

Dans­höf­und­ur­inn Bára Sig­fús­dóttir er búsett St. Gilles hverf­inu í Brussel og hefur ákveðið að halda sig heima við í dag vegna hryðju­verka­árásanna í mið­borg­inni í morgun.

Í morgun ollu fjöl­margar spreng­ingar því að minnst 34 manns létu lífið í hryðju­verka­árásum á flug­velli og lest­ar­stöð í Brussel, höf­uð­borg Belgíu, fyrr í dag. Tuttugu eru sagðir hafa lát­ist á neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöð­inni og 14 á flug­vell­inum. Talið er að mun fleiri hafi særst alvar­lega í árás­unum.

Bára var sem betur fer ekki nálægt árás­unum, en seg­ist heyra mikið í sírenum í hverf­inu. Þá segir hún skrítna stemmn­ingu vera í borg­inni. „Maður er auð­vitað mjög sleg­inn, eins og aðrir. Þetta ristir dýpra þegar að þetta er svona nálægt manni.“ 

„Lífið heldur áfram fyrir þá sem misstu ekki mikið í dag. En maður fær keim af því hvernig fólk hefur það ann­ars staðar í heim­inum, þar sem það er ekki er eins öruggt að búa eins og hefur verið hér í Evrópu fram til þessa,“ segir Bára. 

Hún hefur búið í Brussel síð­ast­liðin átta ár. Hún segir þetta vera dásam­lega borg og vonar að and­inn í borg­inni hald­ist sá sami. En núna er ástandið „hræði­lega sorg­legt allt saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár