Að lifa á betli

Rómani er ekki Rúmeni. Margir rúmenskir verkamenn starfa í Danmörku og senda fé heim. Þeir eru orðnir þreyttir á þeim misskilningi að þeir séu rómanar.

Rúmenskir verkamenn sækja margir út fyrir landamæri Rúmeníu til að fá vinnu.
Rúm­enskir verka­menn sækja margir út fyrir landa­mæri Rúmeníu til að fá vinnu. Mynd: EPA

Á allra síðustu árum hefur fólk frá Austur-Evrópu orðið æ meira áberandi í mörgum borgum Vestur-Evrópu. Margir úr þessum hópi lifa á betli og snöpum, jafnvel þjófnuðum úr búðum, eru litnir hornauga hvar sem þeir fara, eiga sér fáa málsvara. Þótt yfirvöld segi það ekki ætíð berum orðum er þetta fólk hvergi aufúsu­gestir.

Í Rúmeníu draga íbúar margra smábæja fram lífið á peningum sem ættingjar afla, með löglegum eða ólöglegum hætti, norðar í álfunni.

Rómanar og Rúmenar

Hvaðan kemur þetta fólk? Í óformlegri könnun eins dönsku dagblað­anna, meðal fólks á förnum vegi í Kaupmanna­höfn,kom fram að flestir töldu þá sem nú eru æ meira áberandi á götu­hornum, með betlikrús í hendi, vera frá Rúmeníu. „Las það í blöðunum, heyrði það í fréttum“ var algengasta svarið þegar spurt var af hverju viðkomandi nefndi Rúmeníu.

Sívaxandi fjöldi fólks sem hefst við á götum og almennings­væðum hefur verið áberandi í fréttum og samkvæmt upplýsingum yfirvalda kemur það fólk fyrst og fremst frá Rúmeníu. Margir úr þeim hópi vilja hins vegar ekki kalla sig Rúmena, telja sig Rómana (eða sígauna). Eins konar farand­fólk, sem ekki hefur fasta búsetu, né vinnu. Tala eigið tungumál, romani. Ekki er með vissu vitað um fjölda Rómana en talið að innan landa Evrópu­sambandsins séu þeir um það bil sex milljónir.

Schengen samkomu­lagið, sem Rúmenía fékk aðild að árið 2007 gerði fólki auðveldara að fara milli landa. Í Rúmeníu er bæði mikil fátækt og atvinnu­leysi og það skýrir líklega áhuga fólks fyrir að færa sig norðar í álfuna, þar er atvinnu­leysi minna og lífskjör almennt mun betri. En það er ekki einungis róma­fólkið sem leitar norður, Rúmenar sjálfir hafa líka flykkst norður á bóginn í leit að betra lífi.

Margir Rúmenar sitja í dönskum fangelsum

Í Danmörku er mikill fjöldi útlendinga við störf, einkum er það áberandi í bygginga­iðnaði og þjónustu­störfum af ýmsu tagi. Borga skatta og standa sína plikt, duglegt fólk sem hefur, í flestum tilvikum tíma­bundið, freistað gæfunnar með þessum hætti. En í mörgu fé leynist misjafn sauður og um þessar mundir sitja á annað þúsund útlendinga í dönskum fangelsum, þrjátíu prósent allra fanga. Af einstökum þjóðernum eru Rúmenar fjölmennastir, hundrað og sextíu talsins, Sómalar, áttatíu talsins, eru næst­fjölmennastir.

Af hverju er þetta fólk (nær allt karlmenn) ekki sent til síns heima­lands og látið afplána þar, kynni nú einhver að spyrja. Einfalt og sjálfsagt að því er virðist. En víða, til dæmis í Rúmeníu, er aðbúnaður í fangelsum, og meðferð fanga, með þeim hætti að dönsk stjórn­völd segja það mann­réttinda­brot að senda fanga til heima­landsins. Danski dómsmála­ráðherrann sagði nýlega í viðtali að til greina kæmi að Danir leigðu fangelsi í öðrum löndum (nefndi Rúmeníu og Litháen) fyrir fanga frá viðkomandi löndum. Slík fangelsi yrðu þá að uppfylla „dansk standard“ eins og ráðherrann orðaði það. Látið hefur verið á það reyna fyrir dönskum dómstólum hvort senda megi rúmenska fanga, sem hlotið hafa dóma í Danmörku, heim til afplánunar en Hæstiréttur Danmerkur hafnaði því. Ástæðan: slæmur aðbúnaður í rúmenskum fangelsum.

Lifa á peningum sem ættingjar afla

Fyrir skömmu var birt skýrsla sem unnin var á vegum norsku rannsókna­stofnunarinnar Fafo. Nokkrir sænskir, norskir og danskir sérfræðingar unnu þessa skýrslu, sem fjallar um það sem sérfræðingarnir kalla „betlara­smábæi“ í Rúmeníu og Rúmena og Rómana í Danmörku.

Barbulesti heitir einn þessara smábæja. Barbulesti er um það bil fimmtíu kíló­metrum norðaustan við Búkarest. Skráðir íbúar eru 6 þúsund og 98 prósent þeirra eru Rómanar. Þegar norrænu sérfræðingarnir komu til bæjarins vakti það strax athygli þeirra að nánast ekkert fólk var þar á ferli, líkast því að bærinn hefði verið yfir­gefinn. Þeir komust brátt að því að stærstur hluti íbúanna var að heiman. Nánar tiltekið í Norður- og Vestur Evrópu að afla fjár.

Smákaupmaður sem sérfræðingarnir ræddu við sagði að eftir kreppuna árið 2007 hefði Rúmenía klofnað í tvennt: Rúmeníu hinna ríku og Rúmeníu hinna fátæku. Kaup­maðurinn sagði að í bænum væru það einungis 2-3 prósent íbúanna sem hefðu vinnu á heima­slóðum. „Norðar og vestar í álfunni getur fólk aflað 200 evra (ca. 24 þúsund íslenskar krónur) á mánuði en hér heima fær fjöl­skylda 15 evrur (ca. 1.800 krónur íslenskar) frá ríkinu, til fram­færslu. Það hrekkur langt,“ sagði Vagile kaupmaður.

Í Danmörku ríkja miklir for­dómar gagn­vart fólki frá Rúmeníu og þar gerir fólk ekki grein­ar­mun á Rúmenum og Rómönum.

Þegar sérfræðingarnir spurðu hvernig þeir sem ferðast til landa norðar í álfunni afli fjár sagði hann að lang flestir lifðu á að safna flöskum og dósum og selja, betli og ýmis konar lausa­vinnu frá degi til dags. Sumir séu þó í fastri vinnu. Þetta fólk sem leitað hefur norður kemur svo heim (30 klukku­tíma rútuferð frá Kaupmanna­höfn) af og til. Til að hitta fjöl­skylduna og uppfylla reglur ESB, um tíma­bundna dvöl í öðru landi. „Og borga skuldirnar hjá kaup­manninum og öðrum þar sem fjöl­skyldan hefur verið í krít,“ sagði Vagile.

Árum saman í vinnu í Danmörku

Í Barbulesti hittu norrænu sérfræðingarnir Rúmena sem unnið hefur í Danmörku í átta ár og sýndi þeim launa­seðla sína, þar sem fram kemur að hann hafi allan þann tíma unnið hjá sama fyrir­tækinu, borgað skatta og gjöld til danska ríkisins. „Hér heima hefði ég enga vinnu en með þessum hætti get ég séð fyrir fjöl­skyldunni,“ sagði þessi Rúmeni, sem bætti því við að hann ætti eiginlega enga danska vini og kvaðst forðast að nefna þjóðernið í samtölum við fólk. „Í Danmörku ríkja miklir fordómar gagnvart fólki frá Rúmeníu og þar gerir fólk ekki greinarmun á Rúmenum og Rómönum.“

Í mörgum fleiri smábæjum sem norrænu sérfræðingarnir heimsóttu er svipaða sögu að segja og frá Barbulesti. Þeir fóru líka til höfuð­borgarinnar Búkarest en hvergi í landinu er munur á ríkum og fátækum jafn mikill og þar. Íbúar í einu fátækasta hverfi borgarinnar, Ferentari, segja stjórn­völd ekkert vilja af þeim vita og íbúarnir verði einfald­lega að bjarga sér eins og best þeir geti. „Fátæktin og ömurleikinn eru yfir­þyrmandi,“ segir í skýrslu Fafo, flestir íbúanna segjast ekki eygja von um betra líf, „hér lifa flestir frá degi til dags“.

Skammarblettur á Evrópu

Eins og áður var nefnt í þessum pistli er talið að Rómanar í Evrópu séu um það bil sex milljónir og fer fjölgandi. Stjórn­völd í þeim löndum sem þetta fólk leitar til vill sem minnst af því vita og reyna hvað þau geta til að ýta fólkinu út fyrir landa­mærin. Norrænu skýrslu­höfundarnir áður­nefndu segja að slíkt dugi ekki til langframa. Þótt Róma­fólkið hafi aðra lífshætti en flestir aðrir sé það eigi að síður íbúar Evrópu og stjórn­völd í löndum Evrópu­sambandsins verði að hreinsa af sér þennan skammar­blett eins og það er orðað í niðurlags­orðum Fafo-skýrslunnar.

Rétt er að geta þess að Evrópu­sambandið hefur á síðustu árum samþykkt ýmis konar aðgerðir til aðstoðar rómafólki í Evrópu, þær hafa vafalítið skilað ýmsu en líka augljóst að betur má ef duga skal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár