Engeyingarnir greiddu sér 1.500 milljóna arð á árunum 2015 og 2016

Móður­félag Kynnis­ferða hefur hagnast um 1.643 milljónir á undan­förnum tveimur reiknings­árum og greitt út um 2 milljarða arð til hluthafa.

Alfa hf., móður­félag ferða­þjónustu­fyrir­tækisins Kynnis­ferða, greiddi hluthöfum tæplega 2 milljarða arð á árunum 2015 og 2016. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2016, en í skýrslu stjórnar er gerð tillaga um 200 milljóna arðgreiðslu vegna reksturs síðasta árs. 

Alfa hagnaðist um tæplega 1200 milljónir á árunum 2013 og 2014 og greiddi hluthöfum samtals 80 milljónir í arð. Síðan hefur hagur fyrir­tækisins vænkast enn frekar; hagnaður þess árið 2015 nam 1.479 milljónum króna og fyrir­tækið hagnaðist um 164 milljónir í fyrra. 

Helstu eigendur Alfa, og þar með Kynnis­ferða, eru foreldrar, bróðir, föður­bróðir og frændsystkini Bjarna Benedikts­sonar, starfandi forsætis­ráðherra. Af 1.978 milljóna króna arðgreiðslum til hluthafa Alfa á árunum 2015 og 2016 skiptast um 1.500 milljónir niður á þessi nánustu skyldmenni hans. 

Stærstu hluthafar félagsins eru Einar Sveinsson, Benedikt Einarsson, Hrólfur Einarsson, Ásta Sigríður Einars­dóttir, Benedikt Sveinsson og Guðríður Jóns­dóttir auk Jóns Gunn­steins Hjálmars­sonar, viðskipta­félaga Engeyinganna. 

Bjarni Bene­dikts­soner eina barn Einars og Bene­dikts Sveins­sonar sem á ekki hlut.

Sjálfur er Bjarni eina barn þeirra Einars og Benedikts Sveins­sona sem ekki á hlut í Alfa og Kynnis­ferðum. Bjarni sagði sig frá allri viðskipta­þátttöku í desember 2008 og sagðist ekki telja við hæfi að vera bæði í stjórn­málum og viðskiptum þar sem íslenska ríkið væri orðið hluthafi í stóru viðskipta­bönkunum. Ólíkt eiginkonu Einars Sveins­sonar á eiginkona Benedikts, móðir Bjarna, um 10 prósenta hlut í Alfa.

Á meðal smærri hluthafa Alfa á reiknings­árinu 2016 eru Guðrún Sveins­dóttir, Ingimundur Sveinsson, Sveinn Benediktsson, Halldór Jóhannsson, Hjalti Geir Kristjánsson og Björn Bjarnason. 

Hópurinn sem á Alfa og Kynnis­ferðir er að miklu leyti sá sami og átti olíu­félagið N1 fyrir hrun. Eins og Stundin greindi frá í október var yfirtaka Engeyinganna á Olíu­félaginu árið 2006 að miklu leyti fjár­mögnuð með kúlulánum frá Íslands­banka, sem síðar hét Glitnir, en á þeim tíma var Einar Sveinsson stjórnar­formaður bankans auk þess sem þeir Benedikt Sveinsson voru í hópi stærstu hlut­hafanna. Bjarni Benediktsson leiddi fjárfesta­hópinn ásamt Hermanni Guðmunds­syni, sem svo varð forstjóri N1 en Bjarni varð stjórnar­formaður BNT og N1 eftir viðskiptin. Engeyingarnir eignuðust svo Kynnis­ferðir eftir hrun þegar það var selt út úr BNT-samstæðunni sem þá hafði lent í miklum fjárhags­kröggum og stóð í tugmilljarða skuld við Glitni þegar bankinn féll.

Í ágúst 2015 var greint frá því að Alfa hf. hefði selt 35 prósenta hlut í fyrir­tækinu til fjár­festingar­sjóðsins SÍA II sem er í rekstri Stefnis, sjóðs­stýringar­fyrirtækis Arion banka. Kaup­verðið var ekki gefið upp en í tilkynningu um viðskiptin sagði Kristján Daníelsson, þáverandi framkvæmda­stjóri Kynnis­ferða, að rekstur fyrir­tækisins hefði breyst mikið. „Rekstur Kynnis­ferða hefur tekið miklum breytingum á liðnum árum og hefur félagið ráðist í umtals­verðar fjár­festingar til að mæta vexti í ferða­þjónustu á Íslandi. Við munum halda áfram að stækka og efla félagið á komandi árum og töldum því rétt að fá inn nýja hluthafa í félagið á þessum tíma­punkti. Við fögnum aðkomu nýrra fjárfesta og teljum að innkoma þeirra muni styrkja félagið verulega til framtíðar.“ Eigendur Kynnis­ferða virðast hafa hagnast vel á sölunni þegar litið er til þess hve sterk staða félagsins er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár