Tony Blair segir að Verkamannaflokkurinn þurfi að fara alveg á byrjunarreit

Fyrr­verandi forsætis­ráðherra Bretlands segir að sinn gamli flokkur eigi sér ekki viðreisnar von ef hann haldi áfram á sömu braut. Algjörrar endur­ræsingar sé þörf, bæði í efnahags­málum og umræðum um samfélagsmál, þar sem þeir róttækustu vaði uppi.

Tony Blair segist vera með lausnir á vanda Verkamannaflokksins og raunar annarra stjórnmálaafla frá miðjunni og til vinstri.
Tony Blair seg­ist vera með lausnir á vanda Verka­manna­flokks­ins og raunar ann­arra stjórn­mála­afla frá miðj­unni og til vinstri. Mynd: EPA

Tony Blair, fyrr­verandi leiðtogi breska Verkamanna­flokksins og forsætis­ráðherra Bretlands, segir að flokkurinn sem hann eitt sinn leiddi þurfi á algjörri endurnýjun að halda, ætli hann sér að lifa af. „Hann þarf algjört niðurbrot og endur­uppbyggingu. Ekkert annað mun duga,“ sagði Blair í ritgerð sem hann setti fram í breska tíma­ritinu New Statesman í vikunni og hefur fengið mikið umtal þar í landi.

Þar fór hann yfir stöðu flokksins og setti hana í samhengi við hnignandi stöðu afla vinstra megin við miðju annars staðar í Evrópu. „Stjórn­málaflokkar eiga engan guðdóm­legan tilveru­rétt og umbóta­flokkar á miðjunni og vinstra megin við miðju standa frammi fyrir jaðar­setningu, jafnvel útrýmingu, í hinum vestræna heimi,“ skrifaði Blair. Hann varar við því að horft sé á sigur demó­kratans Joe Biden í Banda­ríkjunum sem einhvern sigur vinstrisins. Biden hafi jú verið að takast á við Donald Trump.

Grein Blair er innlegg inn í umræðu um stöðu mála hjá Verkamanna­flokknum, sem tapaði þingsæti sínu í Hartlepool í fyrsta sinn í áratugi er gengið var til auka­kosninga í upphafi mánaðar. Viðbrögð leið­togans Keir Starmer voru á þann veg að stokka upp í ábyrgðar­stöðum innan flokksins og játa að flokkurinn hefði gengið úr takti við og glatað trausti vinnandi fólks.

Stjórnmála­skýrendur hafa sumir bent á það á móti að góður gangur í bólu­setningum og nýlegar tilslakanir á hömlum daglegs lífs verið vatn á myllu Íhalds­flokksins, sem hreppti þingsætið. Enn aðrir hafa haldið því fram að fram­bjóðandi Verkamanna­flokksins, Paul Williams, hafi verið sá versti sem mögulegt var að tefla fram í ljósi þess að hann kom að því að leggja niður bráðamótttöku sjúkra­hússins í Hartlepool og var mjög á móti útgöngu Breta úr Evrópu­sambandinu – sem er ekki vinsæl skoðun í kjör­dæminu.

Segir það sjálfsmark að leyfa þeim róttækustu að leiða umræðuna

Blair kemur því á framfæri í greininni í New Statesman að mikill vandi steðji að Verkamanna­flokknum, sem kristalli vanda hefð­bundinna afla á miðjunni og vinstra megin við hana beggja vegna Atlantshafs.

Vandinn snúist ekki síst um skort á bæði trúverðugum og heillandi skila­boðum í efnahags­málum og afstöðu til umdeildra samfélags­mála sem höfði til fjöldans, í stað þess að leyfa þeim sem eru mest „woke“ — og hafa hæst í umræðunni —að tala fyrir flokkana.

Blair segir að rétta leiðin fyrir umbótaöfl sé að stíga fram með hófsamari hætti í umræðunni um samfélagsmál, ekki úthrópa þá sem eru á öndverðri skoðun, heldur „leita sameiningar“ og forðast slagorða­pólitík, enda hafi það sýnt sig að hægrið vinni þann slag þegar leikar æsast í menningar­stríðinu.

„Og þegar þau verða sökuð um að sýna málstöðunum ekki nægilegan stuðning — sem er óhjákvæmilegt — að verja sig og koma því skýrt á framfæri að þau muni ekki láta neyða sig til þess að sveigja af leið,“ ritar Blair.

Þetta, segir hann, mun kosta fá atkvæði hjá „minni­hluta með háværar raddir“ en hins vegar binda hina stóru en oft þöglu miðju við flokka vinstra megin við miðju.

Hvað efnahags­málin varðar segir Blair, sem sjálfur leiddi Verkamanna­flokkinn mikið til hægri efnahags­lega á þeim tíu árum sem hann var forsætis­ráðherra frá 1997-2007, að flokkar á miðjunni og vinstri ættu að forðast hefð­bundin skilaboð um háa skatta og „stórt ríkisvald“ sem ætli sér mikil fjárútlát.

Hann heldur því fram að heimurinn sé að breytast hratt með öllum þeim tækni­breytingum sem séu að eiga sér stað. Nýi heimurinn þurfi ekki „stórt ríki“ sem slíkt, heldur ríkisvald sem sé virkt og „gott í að leysa vandamál“, stuðla að félagslegri aðild og virkja krafta atvinnu­lífsins.

Vill hann leiða á ný?

Hverju nákvæmlega Tony Blair vill ná fram með þessu ákveðnu skrifum sínum um flokkinn sem hann leiddi í rúman áratug liggur ekki alveg ljóst fyrir.

Einn dálka­höfunda New Statesman segir, með vísan í samtal við persónu­legan vin Blairs, að hann sé með þessu að lýsa sig reiðu­búinn til þess að snúa aftur í framlínu stjórn­málanna og leiða Verkamanna­flokkinn á ný. Hvort það sé raunhæft sé hins vegar annað mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár