Hrókeringar í valdamestu opinberu embættum í fjármálageiranum

Eftir að Christine Lagarde varð fyrir valinu sem næsti yfirmaður Seðla­banka Evrópu, losnaði um stöðu hennar sem framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins.

Eftir að ljóst varð að Christine Lagarde verður næsti yfirmaður Seðla­banka Evrópu, liggur fyrir að það losnar um stöðu framkvæmda­stjóra Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS), sem Lagarde hefur gegnt frá árinu 2011.

Samkvæmt heimildum Bloomberg vilja hátt­settir embættis­menn og leiðtogar í Evrópu fá Mark Carney, seðla­bankastjóra Bretlands, til að taka við starfinu hjá AGS.

Hann hefur mikla alþjóð­lega reynslu, en hann var seðlabankstjóri í Kanada áður en hann tók við starfinu hjá Englands­banka.

Þrátt fyrir að Carney sé frá Kanada þá er hann með breskt og írskt ríkisfang, og getur því uppfyllt skilyrði um að framkvæmda­stjóri AGS komi frá Evrópu.

Carney hefur varað við áhrifum af Brexit og hefur hvatt bæði Evrópu­sambandið og bresk stjórn­völd til þess að ná saman um samning útgöngu Bretlands. Nú er stefnt að útgöngu 31. október, en sé mið tekið af reynslu síðustu mánaða og ára þá gæti farið svo að það frestist enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár