Ríkisfyrirtæki greiddu yfir 200 milljónir í félagsgjöld til hagsmunasamtaka í fyrra

Félög sem ríkið á að fullu eða fer með ráðandi eignar­hlut í greiddu Samtökum atvinnu­lífsins og aðildar­samtökum þess vel yfir 200 milljónir króna í félags- og aðildar­gjöld á síðasta ári.

Hús atvinnulífsins í Borgartúni hýsir Samtök atvinnulífsins og flest aðildarsamtök þeirra.
Hús atvinnu­lífs­ins í Borg­ar­túni hýsir Samtök atvinnu­lífs­ins og flest aðild­ar­sam­tök þeirra. Mynd: Bára Huld Beck

Tólf fyrirtæki, sem íslenska ríkið á alfarið eða fer með ráðandi eignar­hlut í, greiddu samtals að minnsta kosti 173 milljónir króna í félags­gjöld til Samtaka atvinnu­lífsins og annarra hagsmuna­samtaka sem starfa undir hatti samtak­anna á síðasta ári.

Þetta kemur fram í skriflegu svari Bjarna Benedikts­sonar fjármála- og efnahags­ráðherra við fyrir­spurn frá Jóhanni Páli Jóhanns­syni þingmanni Samfylkingarinnar um aðild ríkis­fyrirtækja að Samtökum atvinnu­lífsins.

Svör vantar og heildarsumman nálægt 220 milljónum

Íslands­banki, sem var í fullri eigu ríkisins fram í ágúst í fyrra, greiddi samkvæmt þeim tölum sem birtast í svari ráðherrans mest til hagsmuna­samtaka á síðasta ári, eða alls yfir 63 milljónir króna. Þar af voru félags­gjöld til Samtaka fjármála­fyrirtækja 46,6 milljónir og aðildar­gjöld að Samtökum atvinnu­lífsins 17,2 milljónir.

Lands­bankinn greiddi svo 18,1 milljón króna til Samtaka atvinnu­lífsins en ekki er tekið fram í svari ráðherra hve mikið bankinn greiddi til Samtaka fjármála­fyrirtækja, sem bankinn á þó aðild að. Líklega greiddi bankinn ögn meira en Íslands­banki til þeirra samtaka, en svörin sem ráðherra færir fram í svari sínu voru fengin með fyrir­spurnum ráðuneytisins til þeirra fyrir­tækja sem um ræðir.

Í svari Lands­bankans til Kjarnans segir að upplýsingar um félags­gjöldin til aðildar­samtaka SA hafi vantað í svarið sem bankinn færði ráðuneytinu. „Bankinn mun senda þessar upplýsingar til ráðuneytisins og óska eftir því að svarið verði uppfært,“ segir í skriflegu svari bankans til Kjarnans.

Opinber hlutafélög í SA

Lands­virkjun greiddi 29,1 milljón í aðildar­gjöld til Samorku og 8,2 milljónir til viðbótar til Samtaka atvinnu­lífsins og RARIK greiddi 12,3 milljónir til Samorku og 4,4 milljónir til Samtaka atvinnu­lífsins.

Isavia og Fríhöfnin greiddu svo samanlagt tæpar 14 milljónir í aðildar­gjöld til Samtaka atvinnu­lífsins í fyrra. Íslands­póstur greiddi samtökunum svo 6,2 milljónir í félags­gjöld.

80 milljónir beint til SA og rest til aðildarsamtaka

Af þessum alls rúmlega 200 milljónum króna sem fyrirtæki í eigu ríkisins greiddu til Samtaka atvinnu­lífsins og aðildar­samtaka þeirra fóru tæplega 81 milljón beint til Samtaka atvinnu­lífsins.

Samkvæmt ársreikningi samtak­anna voru tekjur samtak­anna alls rúmar 810 milljónir árið 2020 og má því ætla að ríkis­fyrirtæki hafi staðið undir hátt í tíu prósentum af tekjum Samtaka atvinnu­lífsins árið 2021, ef gert er ráð fyrir því að tekjurnar hafi vaxið hóflega á milli ára.

Ríkisfjölmiðillinn í Samtökum atvinnulífsins

Ríkis­útvarpið á aðild að Samtökum atvinnu­lífsins og greiddi þangað 5,7 milljónir króna í félags­gjöld í fyrra. Flestir stærstu fjöl­miðlar landsins hafa verið aðilar að Samtökum atvinnu­lífsins, en reyndar var sagt frá því á dögunum á fjölmiðla­fyrirtækið Torg, útgefandi Frétta­blaðsins, Hringbrautar og DV, hefði ákveðið að segja sig úr Samtökum verslunar og þjónustu og þar með úr Samtökum atvinnu­lífsins.

„Fyrst og fremst er þetta vegna þess að okkur finnst ekki fara vel á því að fjöl­miðill eigi hagsmuni í hagsmuna­samtökum, ef svo má segja, en þurfi svo kannski að geta fjallað um þau og skýrt frá ýmsum málum þeim tengdum. Við viljum ekki vera undir þá sök seldir að vera mögulega með einhvers konar bias í þeim efnum,“ var haft eftir Jóni Þórissyni forstjóra Torgs í frétt Stundarinnar um þær vendingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár