Fundu sýklalyf í lífrænt vottuðu kjöti

Fjölmargar og sífellt fleiri lífrænar vottanir á dýra­afurðum eru til þess fallnar að rugla neytendur, segja samtök sem fundu leifar af sýkla­lyfjum í kjöti sem framleitt er m.a. fyrir Whole Foods í Banda­ríkjunum.

Sýklalyfjanotkun í bandarískum landbúnaði er mikil.
Sýkla­lyfja­notkun í banda­rískum land­bún­aði er mikil. Mynd: EPA

Við rannsókn óháðu samtak­anna Farm Forward á kjöti sem selt er í verslunum Whole Foods í Banda­ríkjunum og fengið hefur lífræna vottun fundust leifar af sýkla­lyfjum. Sýnin voru tekin í slátur­húsi sem vinnur m.a. kjöt sem selt er hjá Whole Foods, kjöti sem fengið hefur sérstaka vottun USDA um dýra­velferð sem og sambærilegan og lífrænan stimpil úr vottunar­kerfi verslan­anna sjálfra. Whole Foods fullyrðir að ekkert kjöt sem þar sé selt innihaldi sýklalyf – „aldrei nokkurn tímann“.

Þetta er þó ekki eina rann­sóknin sem sýnt hefur sömu niður­stöðu. Í byrjun apríl var birt niður­staða rann­sóknar í vísinda­tímaritinu Science en samkvæmt niður­stöðum hennar fundust sýklalyf í kúm sem notaðar voru til fram­leiðslu kjöts sem fengið hafði sömu vottanir.

Höfundar þeirrar rann­sóknar, sem m.a. eru vísinda­menn við George Washington-háskóla, segja að það sé nær ómögulegt fyrir neytendur að sannreyna hvort að dýr sem notuð eru til kjöt­framleiðslu hafi fengið sýklalyf eða ekki. Neytendur þurfi því að geta treyst á fram­leiðendur, stjórn­völd eða vottunar­aðila í þeim efnum. Stjórn­völd beri ábyrgð á því að farið sé eftir vottunum sem þessum enda gefi þau þeim grænt ljós en yfirvöld geri þó engar sjálf­stæðar rann­sóknir.

Talsmaður Whole Foods segir í samtali við Washington Post að fyrir­tækið hafi ekki nokkra ástæðu til að trúa því að kjöt af þeim naut­gripum sem sýni voru tekin úr við rann­sóknirnar rati í þeirra verslanir. Ekki sé hægt að ganga úr skugga um það þar sem rann­sakendur hafi ekki gefið upp nafnið á slátur­húsinu þaðan sem sýnin voru tekin. Erfitt sé því að skera úr um hvort að um kerfislegt vandamál sé að ræða eða að þarna séu aðeins á ferð „nokkur skemmd epli“.

Kerfislægur vandi

Kevin Lo, sem starfar með FoodID sem tók þátt í rann­sókninni ásamt vísinda­mönnum George Washington-háskóla, segir að niður­stöðurnar sýni að vandinn sé kerfis­lægur og snúist ekki um einstaka bændur, einstök býli, verslanir eða veitinga­staði. Meðal þess sem fannst við rannsókn samtak­anna Farm Forward voru leifar vaxtar­hvetjandi lyfja, lyfja sem bannað er að nota samkvæmt lífrænu vottunar­stofunum.

Samtökin segja að í bandarískum kjöt­iðnaði séu notaðar margar og ruglandi vottanir til að dreifa athygli neytenda. Meira að segja stórar keðjur á borð við Whole Foods, sem rekur um 500 verslanir vítt og breitt um Banda­ríkin, Kanada og Bretland, geti ekki tryggt að kjötið sem þar er selt sé lyfja­laust.

Nýlegar rann­sóknir hafa sýnt að ónæmi fyrir sýkla­lyfjum sé vaxandi vandamál hjá fólki víða um heim og er það beintengt gríðarlegri notkun slíkra lyfja í búfjár­eldi. Lyfin eru notuð til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma á hverslags verksmiðju­búum og til að auka vaxtar­hraða dýranna sem þar eru haldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár