Passa verði upp á að þétting verði ekki svo mikil að hverfin hætti að ganga upp

Oddviti Sjálfstæðis­flokksins segir að þver­pólitíska sátt vera í öllum flokkum um að bæta almennings­samgöngur í Reykjavík. Það séu hins vegar óvissu­þættir í borgar­línu­verkefninu sem hægra fólk eins og hún hafi áhyggjur af.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, segir að það fyrsta sem hún myndi gera kæmist hún í meirihluta væri að reyna að leysa þann vanda sem sé uppi í leik­skólamálum í borginni.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í máli Hildar í nýjum kosn­inga­þætti Kjarn­ans, Með orðum odd­vit­anna, þar sem Eyrún Magn­ús­dóttir ræðir við alla odd­vita þeirra ell­efu fram­boða sem bjóða sig fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara þann 14. maí næst­kom­andi.

Segir þverpólitíska sátt um að bæta almenningssamgöngur

Aðspurð hvort hún styðji Borgar­línu segir Hildur að það verkefni hafi að einhverju leyti orðið samheiti yfir bættar almennings­samgöngur. Hún segist telja að allir vilji fleiri forgangsakgreinar, tíðari ferðir og betri biðskýli. „Það merkilega er að það er held ég þver­pólitísk sátt í öllum flokkum um að bæta almennings­samgöngur í Reykjavík.“

Hildur segir þó ákveðna óvissu­þætti vera í borgar­línu­verkefninu sem hægra fólk eins og hún hafi áhyggjur af. Það sé til að mynda enn óvissa um fjár­mögnun á 60 af þeim 120 milljörðum króna sem verkefnið á að kosta. Þá hafi engin rekstrar­áætlun verið kynnt eða það fengist á hreint hvort ríkið muni með einherjum hætti koma inn í reksturinn.

„Svolitlir strákastælar“

Í húsnæðis­málum segir Hildur að henni finnst stóryrt loforð um tvö til þrjú þúsund íbúða uppbyggingu á ári, sem hafa heyrst frá Samfylkingunni og Framsóknar­flokknum, vera „svolitlir stráka­stælar“. Í stað þess að festar í fjölda íbúða tali hún fyrir raunhæfum svæðum þar sem hægt sé að byrja að byggja strax.

Hildur segir að það sé skynsamlegt að þétta byggð og fyrir hægra fólk eins og hana sé það raunar tónlist í þeirra eyrum að stefna að slíku. Ákveðins misskilnings gæti hins vegar í umræðunni um þéttingu byggðar í Reykjavík þegar látið sé eins og að einungis ein leið sé fær til þess. „Hvergi í heiminum sjáum við gengið svo langt í þéttingu eins og í Reykjavík. Þetta er ákveðið einsdæmi þetta þéttingar­magn.“

Vilja þétta án þess að ganga á innviði

Því horfi hún og Sjálfstæðis­flokkurinn til þess að þétta byggð í hverfum eins og Úlfars­árdal, Staðar­hverfi í Grafar­vogi og á Kjalarnesi og ráðast í nýja uppbyggingu á Keldna­svæðinu og í Örfirisey.

Þegar hún er spurð að því hvort það felist ekki þversögn í að tala um þéttingu þegar um er að ræða hverfi í útjaðri borgarinnar, en ekki þéttingu inn á við, segir Hildur að það þurfi að passa upp á þéttingin verði ekki það mikil, og gangi það mikið á innviði, að hverfin hætti að ganga upp. Hún nefnir Vestur­bæinn og Laugar­dalinn sem dæmi. „Stór og barnmörg hverfi. Leikskóla­vandinn er hvergi stærri í allri borginni heldur en nákvæmlega á þessum stöðum. Biðlistar eftir frístund eru hvergi lengri heldur en í nákvæmlega þessum hverfum. Og þetta eru þau tvö hverfi sem búa við hvað verstan kost þegar kemur að íþrótta­mannvirkjum og aðstöðu fyrir íþrótta­iðkun barna. En endalaust er byggt þarna fyrir fjöl­skyldur og reynt að fjölga íbúum. Ég gleymdi reyndar að nefna að skólarnir eru líka sprungnir.“

Segir sátt þegar hafa náðst

Sjálfstæðis­flokkurinn hélt stórt prófkjör í aðdrag­anda kosninganna þar sem Hildur, sem talin hefur verið til frjáls­lyndari arms borgar­stjórnar­flokksins, fékk 49,2 prósent atkvæða í fyrsta sætið. Fram­bjóðendur með íhalds­samari skoðanir á borgar­málum, sérstak­lega þegar kemur að sýn á skipulags- og samgöngumál, raðaði sér í næstu sæti á eftir.

Aðspurð hvort sá hópur geti náð einhverri niður­stöðu um hvernig þessum málum eigi að vera háttað segir Hildur að hún hafi þegar náðst. „Það er sú sýn sem við kynnum í okkar málefna­stefnu. Þegar það kemur að samgöngum þá hefur það alltaf verið sýn Sjálfstæðis­manna að tryggja frelsi og val og frjálsa valkosti. Við höfum sameinast um þessa kosti sem við kynnum til leiks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár