Stundin valin besti vefmiðillinn

Samtök vefiðn­að­arins hafa veitt Stundinni verðlaun sem vefmiðill ársins 2015. „Hefur haft mikil áhrif á aðra vefmiðla og þjóðfélags­umræðu,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.

Stundin.is var valinn vefmiðill ársins á Íslensku vefverðlaununum 2015, sem afhend voru á föstudags­kvöld við hátíðlega athöfn. 

Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að vefmiðilinn hefði haft áhrif á aðra vefmiðla og þjóðfélags­umræðu:

„Sá vefur sem varð fyrir valinu sem besti vefmiðillinn kom fram á sjónar­sviðið með ferskum blæ og hefur haft mikil áhrif á aðra vefmiðla og þjóðfélags­umræðu. Efnið er fjöl­breytt og forvitnilegt og sett fram á læsilegan hátt. Uppsetningin og notkun á „responsive“-veftækni er vel hugsuð og útfærslan er áhugaverð. Uppbygging og flæði á vefmiðlinum er gott og skipulag hans skýrt.  Þessir eigin­leikar gera það að verkum að vefmiðillinn er auðlesinn og mjög þægilegur í notkun.“

Íslensku vefverðlaunin hafa verið haldin árlega frá árinu 2000 og er markmið þeirra að „verðlauna þá sem vinna góða vinnu innan vefiðnaðarins og upphefja þau góðu verkefni sem eru unnin“.

Besti íslenski vefurinn í öllum flokkum var valinn miðasölu­vefurinn tix.is.

Verðlaunahafar í öllum flokkum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár