Kallar myndbirtingu af grunuðu fólki í Samherjamálinu hefndaraðgerð RÚV

Forstjóri Samherja hefur sent starfs­fólki fyrir­tækisins bréf þar sem hann kvartar yfir því að myndir af starfs­fólki sem er með stöðu sakbornings í sakamála­rannsókn hafi verið birtar á RÚV.

Þorsteinn Már Baldvinsson
Þor­steinn Már Bald­vins­son Mynd: Samherji

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, kvartar yfir mynd­birtingu RÚV af því fyrr­verandi og núverandi starfs­fólki Samherja sem er með stöðu sakbornings í rannsókn á starfsemi fyrir­tækisins í Namibíu örvæntingar­fulla hefndar­aðgerð „dulbúin sem frétt og gróf aðför að saklausu fólki.“ Þetta kemur fram í bréfi Þorsteins Más til starfs­fólks Samherja sem birt hefur verið á heimasíðu fyrir­tækisins.

RÚV greindi frá því í gær að sex einstaklingar væru með réttar­stöðu sakbornings í rannsókn héraðs­saksóknara á starfsemi Samherja. Þeir eru, auk Þorsteins, Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Aðal­steinn Helga­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, og uppljóstrarinn Jóhannes Stef­áns­son, sem var um tíma framkvæmda­stjóri Samherja í Namibíu.

Í mál­inu er grunur er að um mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Segist ekki óttast rannsókn

Í bréfi sínu í til starfs­fólks fjallar Þorsteinn Már ekki efnislega um þá rannsókn sem stendur yfir en segist ekki kvíða því máli sem sé til rann­sóknar og gerir ekki tilraun til að hrekja efnis­atriði fréttar RÚV um það hverjir séu með stöðu sakbornings við rannsókn málsins. „Rannsókn er ekki dómur og það er óverjandi að ríkis­fjöl­miðillinn felli dóma yfir saklausu fólki með þeim hætti sem var reynt í gærkvöldi,“ skrifar Þorsteinn Már.

Þorsteinn Þár segir að hann telji að RÚV hafi aldrei lagst jafn lágt í frétta­flutningi og með umræddri frétt, og á þar við að ljós­myndir hafi verið birtar af því fólki sem sé með stöðu sakbornings í málinu. „Þessi vinnu­brögð Ríkis­útvarpsins eru með miklum ólíkindum enda birtir frétta­stofan ekki einu sinni myndir af mönnum sem eru grunaðir um gróf ofbeldis­brot fyrr en þeir hafa hlotið dóm, ef slík mál rata á annað borð í fréttir.

Öllum má vera ljóst að mynd­birting af þessu tagi er mjög þungbær fyrir þá sem eiga í hlut og fjöl­skyldur þeirra. Allir þeir starfs­menn, sem birtar voru myndir af í gærkvöldi, eru óþekktir og hafa aldrei eða örsjaldan verið nafn­greindir í fjöl­miðlum áður. Menn þurfa ekki að velkjast í neinum vafa um að eini tilgangur með þessari mynd­birtingu, í annars afar innihalds­rýrri frétt, var að valda sem mestum skaða. Er þetta enn einn vitnis­burðurinn um hnignun frétta­stofu Ríkis­útvarpsins.“

Miklar útistöður eftir opinberun

Samherji hefur átt í miklum útistöðum við RÚV eftir að þáttur Kveiks sem opin­ber­aði starf­semi Sam­herja í Namibíu fór í loftið í nóv­­em­ber á síð­­asta ári en umfjöll­unin var unnin í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeera og Wikileaks. Margra mán­aða rann­­sókn­­ar­vinna þeirra sýndi fram á meintar mút­u­greiðsl­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namib­­íu. Allt það fólk sem var til umfjöllunar í frétt RÚV í gær var nafn­greint og var til umfjöllunar í Kveiks­þættinum í nóvember.

Undan­farið hefur birtingar­mynd þeirra átaka verið myndbönd sem Samherji hefur látið framleiða og ákvörðun fyrir­tækisins að kæra ellefu starfs­menn RÚV til siða­nefndar ríkis­fjöl­miðilsins fyrir framgöngu þeirra á samfélags­miðlum.

Sjö nýjustu frétta­tilkynningar sem birtar hafa verið á heimasíðu Samherja fjalla um RÚV með einhverjum hætti.

Til rannsóknar víða

Í þætti Kveiks gekkst Jóhannes Stef­ánsson við því að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namibíu og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a.

Hér á landi eru bæði hér­­aðs­sak­­sókn­­ari og emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra með mál tengd starf­­semi Sam­herja í Namibíu til rann­­sókn­­ar. Málið hefur einnig til rann­sóknar í Nor­eg­i.

Jóhannes var yfir­heyrður af starfs­mönnum héraðs­saksóknara í nóvember í fyrra en auk hans hafa áður­nefndir fimm fyrr­verandi og núverandi starfs­menn Samherja verið kallaðir til yfirheyrslu, og þeim gerð grein fyrir réttar­stöðu sinni.

Sacky Shanghala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu, Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, og Tamson Hatuikulipi, tengda­sonur Esau, hafa ásamt fjórum öðrum setið í gæslu­varð­haldi frá því á síð­asta ári á meðan namibísk yfir­­völd rann­saka mál þeirra. Þeir eru grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Sam­herja í skiptum fyrir kvóta.

Í bréfi sem Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóra Sam­herja sem var ráð­inn til félags­ins eftir að málið kom upp, birti á sjá­v­­­ar­út­­­vegs­frétta­vefnum Undercurrent News 24. ágúst síð­ast­lið­inn sagði meðal ann­ars að eng­inn vafi væri að „Sam­herja hefur mis­­­tek­ist að verja dótt­­ur­­fé­lög sín gegn brotum ein­stak­l­inga. Okkur þykir það mjög leitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár