Óður til líkamlegrar skynjunar

Hvað verður um líkamann þegar hug manns er hlaðið upp í gervi­greindar­skýið? Þetta er viðfangs­efnið í dans­verkinu Sérstæðan eftir Rósu Ómars­dóttur þar sem áhorf­endum er boðið að nýta líkamleg skynfæri sín áður en þau verða gervi­greindinni að bráð.

Dansarinn Inga Huld Hákonar­dóttir hleður sjálfri sér upp í gervi­greindar­veruleika og hverfur af sviðinu í dans­verkinu Sérstæðan sem Rósa Ómars­dóttir semur. Verkið var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival fyrir jól en verður nú sýnt aftur dagana 18. og 19. febrúar í Tjarnar­bíói.

Rósa segist hafa byrjað að skrifa verkið árið 2018, löngu áður en spuna­greind eins og ChatGPT varð hluti af daglegu lífi margra Íslendinga. „Svo tók ég upp þráðinn og þá var ChatGPT að koma á fullu,“ segir hún. „Ég er búin að vera að pæla í þessu lengi, sérstak­lega því ég er í dansi og vinn mikið með líkamann minn.“

Rósa Ómars­dóttirDans­höf­undur seg­ist aldrei nota gervi­greind í list­sköpun sinni en tengsl lík­am­ans og gervi­greindar eru við­fangs­efnið í nýju verki hennar.

Titill sýningarinnar, Sérstæðan, er íslenska orðið yfir það sem á ensku er kallað „singularity“ …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár