Sóttvarnareglur framlengdar um þrjár vikur

Núgildandi sóttvarna­reglur, sem gilda til 12. janúar, verða fram­lengdar um þrjár vikur. Ríkis­stjórnin ræddi nýtt minnis­blað sóttvarna­læknis á fundi sínum fyrir hádegi og féllst á tillögur hans um fram­lengingu aðgerða.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fór að ráðum sóttvarnalæknis í minnisblaði sem barst honum í gær og framlengdi gildandi sóttvarnareglur um þrjár vikur.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra fór að ráðum sótt­varna­læknis í minn­is­blaði sem barst honum í gær og fram­lengdi gild­andi sótt­varna­reglur um þrjár vikur. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég held að við þurfum að taka á honum stóra okkar enn um sinn,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra að loknum ríkis­stjórnar­fundi í hádeginu. Minnis­blað sóttvarna­læknis sem hann skilaði til heilbrigðis­ráðherra síðdegis í gær var til umræðu á fundi ríkis­stjórnarinnar í morgun sem samþykkti að fara eftir tillögum sóttvarna­læknis í einu og öllu, það er að fram­lengja gildandi takmarkanir um þrjár vikur.

Aðgerðirnar fela í sér áfram­haldandi 20 manna samkomu­takmarkanir, með undan­tekningu varðandi 50 gesti á sitjandi viðburðum og 200 gesti með neikvætt hraðpróf. Tveggja metra nálægðar­takmörk verða áfram í gildi og grímu­skylda þar sem ekki er unnt að tryggja tveggja metra regluna. Sóttvarna­reglur hvað varðar skóla­starf miðast áfram við 50 nemendur. Þá mega veitinga­staðir með vínveitinga­leyfi, skemmtistaðir og krár hafa opið til klukkan 21 en allir gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn klukkan 22. Skíða­svæði, sund­laugar og líkams­ræktar­stöðvar verða opnar fyrir 50% af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta.

Núgildandi sóttvarna­reglur, sem hafa verið í gildi frá því á Þorláks­messu, renna út á morgun en verða fram­lengdar til 2. febrúar. Aðgerðir voru hertar vegna fjölda smita, ekki síst vegna ómíkron-afbrigðisins, sem greindist hér á landi í desember en hvert smitmetið var slegið á fætur öðru í aðdrag­anda jóla og náði hámarki 30. desember þegar 1.553 smit greindust innanlands og á landa­mærum.

Um 20 þúsund manns hófu árið í einangrun eða sóttkví og á föstudag tóku gildi breyttar reglur um sóttkví þar sem þríbólusettir eru undan­þegnir hefð­bundinni sóttkví. Reglunum var breytt af faglegum ástæðum að sögn sóttvarna­læknis og heilbrigðis­ráðherra sagði breytingarnar gerðar til að halda samfélaginu gangandi eins og framast er kostur.

„Við erum ekki öll heilbrigð“

1.191 smit greindist innanlands í gær og 41 á landa­mærunum, samkvæmt bráðabirgða­tölum frá almanna­vörnum. Kona á níræðis­aldri lést á Land­spítala með COVID-19 í gær. 41 hefur látið lífið frá því að faraldurinn braut út fyrir tæpum tveimur árum, þar af fjórir á fyrstu dögum þessa árs. Í dag eru 39 á Land­spítala með COVID-19. Sjö eru á gjörgæslu og fjórir þeirra í öndunarvél. Meðal­aldur þeirra sem eru á spítala er 64 ár.

Már Kristjánsson, forstöðu­maður lyflækninga og bráða­þjónustu Land­spítala, bendir á að hér á landi er ekki einsleitur hópur af heil­brigði fólki. Í dag liggja til að mynda tveir á COVID-deild Land­spítala sem eru alla jafna í skilun, þá er einnig líffæra­þegi, sjúklingur með sprunginn botnlanga og barns­hafandi konur. Þetta kom fram í máli Más áopnum fundi velferðar­nefndar Alþingis í morgun þar sem framkvæmd sóttvarna­aðgerða var til umræðu.

Már sagði mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því að ekki er um eins­leitan hóp af heil­brigðu fólki að ræða í íslensku samfélagi heldur sambland af fólki með langvinn veikindi sem gerir það að verkum að mjög mörg okkar standa höllum fæti. Að mati Más það skiptir höfuðmáli að útbreiðsla bólu­setninga í samfélaginu sé með þeim hætti sem stefnt er að þar sem hún dregur úr hættu á alvarlegum veikindum hjá fólki sem stendur höllum fæti. „Fólk þarf að hafa það í huga, við erum ekki öll heilbrigð,“ sagði Már.

Varhugavert að stytta einangrun frekar að mati sóttvarnalæknis

Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir sat einnig fyrir svörum á fundinum þar sem hann var meðal annars spurður út í möguleika þess að stytta einangrun smitaðra frekar, en hún hefur nú þegar verið stytt úr tíu dögum í sjö. Þórólfur sagði það varhuga­vert þar sem það auki hættu á frekari útbreiðslu veirunnar.

„Mín fram­tíðarsýn er sú að við þurfum að búa við einhverjar takmarkanir núna til þess að halda faraldrinum í skefjum,“ sagði Þórólfur. Hann sagði marga hafa talað niður þær aðgerðir sem gripið hefur verið til undan­farið og að þær hafi ekki skilað neinu. „Það er bara ekki rétt. Vegna þess að ef að við hefðum ekki verið með þessar aðgerðir þá hefði faraldurinn verið í veldis­vexti, hann er í línulegum vexti vegna þess að við erum með sama fjölda smita á dag,“ sagði Þórólfur, sem telur mögulegt að hjarð­ónæmi myndist á næstu vikum eða mánuðum.

Að hans mati má lítið út af bregða svo afleiðingarnar faraldursins verði alvarlegar. Þá segir hann raunhæft að stefna að 500 smitum og einum til tveimur innlögnum á spítala á dag. „Ef við missum þolinmæðina og fáum gjör­samlega nóg af þessu öllu saman og viljum bara hætta þessu þá fáum við þetta í bakið aftur, því miður,“ sagði sóttvarna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár