Þórólfur veit af þreytunni – ekki þýði þó að „loka augum og eyrum“

Enn einn upplýsinga­fundurinn. 22.086 tilfellum eftir að fyrsta kórónu­veirusmitið greindist fyrir 22 mánuðum. Veiran er „sniðug og virðist alltaf ná að leika á okkur,“ segir land­læknir. „Áfram veginn,“ segir Víðir.

Þríeykið: Víðir, Þórólfur og Alma á upplýsingafundi dagsins.
Þríeykið: Víðir, Þórólfur og Alma á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Almannavarnir

„Þá erum við hér eina ferðina enn og veiran að trufla jóla­haldið, því miður,“ sagði Alma Möller land­læknir á upplýsinga­fundi sem haldinn var í dag, á Þorláks­messu. Þetta er fyrsti upplýsinga­fundurinn sem haldinn er vegna heims­faraldursins í 48 daga. Slíkur fundur var síðast haldinn 5. nóvember. Þá höfðu liðið tæpir þrír mánuðir á milli funda.

Þríeykið hefur þó engu gleymt. Víðir Reynisson yfir­lögreglu­þjónn heilsaði með sinni gleðilegu kveðju: „Góðan og blessaðan daginn“. Hann lauk svo fundinum einnig eins og svo aftur áður með því að stappa stálinu í þjóðina við skjáinn. Hvetja fólk til að passa upp á hvert annað og standa saman.

Samstaðan var töluvert rædd á fundinum. Og þreytan. Þreyta eftir langan óvissu­tíma. Þríeykið var þó sammála um að samstaðan væri ekki að rofna. Enda þýddi ekkert, að sögn sóttvarna­læknis, að „loka augum og eyrum“ við ástandinu.

Fyrsta tilfellið af kórónu­veirunni var staðfest hér á landi 28. febrúar árið 2020. Síðan þá eru liðnir 22 mánuðir og frá þeim tíma hafa 22.087 smit greinst. 37 hafa látist á Íslandi vegna COVID-19.

Í gær greindust 494 með kórónu­veiruna. Smitin voru langflest innanlands en þó fjölmörg á landa­mærunum eða 51. Níu liggja á sjúkra­húsi með COVID-19 þar af þrír á gjörgæslu og eru þeir allir í öndunarvél.

„Við höfum áfram mestar áhyggjur af því að álagið á heilbrigðis­kerfið verði of mikið því okkar hættumat bendir til að það geti orðið raunin,“ sagði Víðir. Smit­rakning nái ekki að anna álagi í augna­blikinu og einnig var á fundinum nefnt að eitt forgangs­atriði væri að efla COVID-göngu­deildina, m.a. með aukinni sjálf­virkni og spurninga­listum til smitaðra.

Hinn óútreiknanlegi faraldur

Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir minnti á, líkt og oft áður, að faraldurinn væri óútreiknanlegur og því þurfi stöðugt að aðlaga sóttvarna­aðgerðir í takti við það. „Síðastliðið sumar heldum við að okkur væri að takast að vinna bug á veirunni með tveimur bólu­setningum fyrir hvern einstakling. En það reyndist ekki vera raunin.“

Delta-afbrigðið hafi reynst skæðara en þau fyrri og bólu­setning dugar ekki til að halda smitum í skefjum. Þá var gripið til þess að hefja örvunar­bólu­setningu. „Það virkaði mjög vel og allt stefndi í að okkur myndi takast að hamla útbreiðslu veirunnar. Því miður var raunin önnur með tilkomu nýs afbrigðis, ómíkron, sem hefur komið með leiftur­hraða inn á sjónar­sviðið með nýja eigin­leika sem sett hafa fyrri áætlanir í uppnám.“ Sagði hann útlit fyrir að ómíkron nái að „taka yfir“ delta-afbrigðið á næstu dögum eða vikum.

Smitast mun hraðar

Eigin­leikar ómíkron felast m.a. í smit­hæfninni sem er mun meiri en annarra afbrigða sem þýða að mun fleiri smitast á styttri tíma.

Þá er meðgöngu­tími veirunnar styttri sem þýðir að tíminn frá því að smit á sér stað og þar til einkenna koma fram er nú aðeins þrír dagar en var að minnsta kosti fjórir hvað delta varðar.

„Spurningin er svo sú: Veldur ómíkron-afbrigðið öðruvísi sjúkdómi en fyrri afbrigði? Sjúkdóms­einkennin eru svipuð en vísbendingar eru uppi um að alvarleg veikindi séu fátíðari. Þetta er hins vegar ekki alveg ljóst.“ Nefndi hann í þessu sambandi að í Danmörku væru flestir sem greinst hafa með afbrigðið ungt, full­frískt og full­bólusett fólk. Staðan gæti orðið önnur ef það færi að greinast hjá viðkvæmum hópum. Milli 0,5 og 1 prósent þeirra sem greinst hafa með ómíkron í Danmörku hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús.

Þórólfur sagði þetta í sjálfu sér ánægjuleg tíðindi en að í ljósi mikillar smithæfni afbrigðisins gæti „nettó­útkoman“ orðið sú að margir veikist hér alvarlega á stuttum tíma. „Álag á spítala­kerfið getur þannig orðið mjög mikið með alvarlegum afleiðingum.“

En hver er þá vernd bólu­efnanna gagnvart ómíkron?

Rann­sóknir eru enn af skornum skammti. Ein dönsk og önnur bresk benda þó til að bólu­setning með tveimur sprautum veiti „þokkalega“ vernd gegn smiti og vægum einkennum. Vernd gegn alvarlegum veikindum sé hins vegar ekki þekkt en að líkindum sé hún meiri en vernd gegn smiti.

Verndin virðist hins vegar batna mikið eftir örvunar­skammt, bæði varðandi smit og vægum einkennum og sagðist Þórólfur telja að hún væri almennt meiri gegn alvarlegum veikindum em smiti.

„Til að koma í veg fyrir neyðar­ástand á sjúkra­húsum er nauðsynlegt að ná tökum á þeirri uppsveiflu sem við erum að sjá hvað varðar fjölda daglegra smita. Við vitum ekki hversu margir munu veikjast alvarlega á næstunni og þurfa á innlögn að halda.“ Enn sem komið er hafi innlögnum ekki fjölgað en það kunni að breytast á næstunni ef þróunin verður svipuð hér og í Danmörku. „Vonandi mun það þó ekki gerast og vonandi mun víðtæk bólu­setning koma í veg fyrir alvarleg veikindi.“

Baráttan verður að halda áfram

Þórólfur sagði að samstaðan um aðgerðirnar til að hefta útbreiðsluna væri áfram lykil­atriði. „Það er hins vegar ljóst að mikil þreyta og uppgjöf er komin í nánast alla í samfélaginu gagnvart COVID-19. En við við megum ekki láta það láta draga úr okkur þrek og þor. Við verðum að halda barátt­unni áfram því annars munum við sjá víðtækar heilsufarslegar afleiðingar.“

Álagið á Land­spítala hefur verið mikið um langt skeið, sagði Alma. Allar legu­deildir væru fullar, fyrir utan smit­sjúkdóma­deildina, og vel það. Þá væri mikið álag á gjörgæslu og „staðan á bráða­móttöku hefur verið óásættanleg til lengri tíma“.

Til ýmissa ráða hafi verið gripið til að reyna að létta álagið en engu að síður væri staðan á spítalanum þung. „Þess vegna höfum við áhyggjur af þessari stóru bylgju ómíkron-smita og ef smitin verða mörg má búast við auknum fjölda innlagna.“

Land­læknir biðlaði til fólks að fylgja áfram öllum reglum og einstaklings­bundnum sótt­vörnum eins og að nota grímur sem væri sérlega mikilvægt nú þegar glímt væri við svo smitandi afbrigði.

Þórólfur sagði að smitin í gær og síðustu daga ekki hægt að rekja til sérstakra viðburða. Fólk hefði verið mikið á ferðinni og „smit hefðu getað orðið hvar sem er.“

Hraðpróf gefa frekar falska jákvæða niðurstöðu

Spurður hvort að hraðpróf væru að reynast óáreiðanlegri en talið var sagðist Þórólfur hafa fengið fréttir af vanda­málum þar að lútandi. Hann hefði ekki gögn um þá sem greinst hefðu neikvæðir á hraðprófi en svo jákvæðir á PCR-prófi. „En við erum hins vegar með upplýsingar um að þeir sem hafa greinst jákvæðir á hrað­greiningar­prófum og síðan neikvæðir á PCR-prófi. Hátt í helmingurinn sem hafa greinst jákvæðir á hraðprófi hefur svo í rauninni reynst neikvæður.“ Sagði hann mjög mikilvægt að treysta ekki um of á hraðgreininarprófin. Þeir sem finni einkenni eigi að fara í PCR-próf. Alma sagði Dani hafa áhyggjur af blöndun kynslóða yfir hátíð­arnar. Þessu ætti að taka alvarlega og hvatti hún alla til að gæta sérstak­lega að sér.

„Við höfum allan tímann verið að binda vonir við að eitthvað nýtt sé að koma sem muni binda enda á þetta fár sem við erum í,“ sagði Þórólfur, spurður hvort að hyllti undir endalok alvarleika faraldursins með vægara afbrigði. „Það er allt í lagi að binda vonir en megum ekki halda að það verði þannig. Nákvæmlega eins og í sumar þegar við héldum að þetta væri að klárast með bólu­setningum. Við þurfum að vera undir það búin eftir sem áður að upp komi nýtt afbrigði sem jafnvel veldur alvarlegri sjúkdómi. Hvort að það sé líklegt eða ólíklegt, menn geta fabúlerað um það fram og til baka.“

Veiran sniðug

Spurður hvort það væru ekki vonbrigði hversu faraldurinn hefði dregist á langinn sagði hann þau vissulega vera til staðar en að það þýði ekki „að loka augunum og segja að nú sé liðinn svo langur tími og að nú eigi þetta bara að vera í lagi. Við þurfum að skoða þetta með tilliti til þeirrar veiru sem er í gangi og aðlaga okkar aðgerðir að því.“

Alma bætti við að „þessi veira“ væri einfald­lega mikil vonbrigði, „hvað hún er sniðug og tekst að leika á okkur þótt að við séum sífellt að reyna að vera skrefi á undan“.

Þórólfur sagðist aldrei hafa sagt hvenær faraldrinum myndi ljúka, aðeins hvernig útlitið væri á hverjum tíma. „En ég hef alltaf sagt að við þurfum að vera undir það búin að eitthvað nýtt komi fram.“

Land­læknir minnti á að á hverjum tíma væru ákvarðanir teknar út frá þeirri þekkingu sem liggi fyrir.

„Markmiðin okkar eru áfram þau sömu,“ sagði Víðir undir lok fundarins. „Við ætlum að tempra hann, draga úr smitum og verja heilbrigðis­kerfið. Við ætlum að halda áfram að verja viðkvæma hópa. Við ætlum áfram að leita leiða til að berjast við veiruna á landa­mærunum og hefta samfélagslegt smit með það að markmiði að geta lifað hér í sem opnustu og frjálsustu samfélagi og á sama tíma haldið uppi ásættanlegu öryggis­stigi.

Áfram veginn – það er ekkert annað í boði. Og ég held að við séum tilbúin í það öll. Setjum undir okkur hausinn. Stöndum saman. Við kunnum þetta, við getum gert þetta. Passið vel upp á hvert annað og sýnið hvert öðru kærleika á öllum sviðum.

Gleðilega hátíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár