Robert Mueller, saksóknararinn sem stýrir Rússlandsrannsókninni svonefndu, heldur því fram í greinargerð, sem gerð var opinber í gær, að Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, sé best lýst sem forhertum glæpamanni. Hann hafi um margra ára skeið framið margvísleg lögbrot af einbeittum ásetningi.
Hann segir í greinargerðinni að Manafort hafi margt ólöglegt á samviskunni, eins og skattalagabrot, fjársvik og peningaþvætti, en það sé þó ekki allt. Á undanförnum áratug segir Mueller að Manafort hafi framið margvíslega glæpi, þeir hafi náð alveg fram á haustið 2018, jafnvel eftir að hann var handtekinn og dæmdur fyrir fjársvik og ólögmæta aðstoð við yfirvöld annarra ríkja.
Þá segir enn fremur að glæpir Manafort - eftir að hann var handtekinn og dæmdur fyrir lygar við lögreglurannsóknir - þá hafi hann reynt að hafa áhrif á vitni og hindra framgang réttvísinnar við rannsókn mála.
Greinargerðin var lögð fram í dómstólum í Washington DC en dómsmálin gegn Manafort eru rekin bæði í höfuðborginni og í Virginíu.
Manafort, sem hefur verið náinn bandamaður Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um árabil, gæti átt yfir höfði sér ævinlaga fangelsinsvist, en sé horft til fjársvikanna sem hann hefur verið ákærður fyrir, gæti hann átt yfir höfði sér 24 ára fangelsi. Manafort er 69 ára gamall og gæti því setið í fangelsi það sem hann á eftir ólifað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir