Vilja að þú fáir þér ís með Netflix áhorfinu

Netflix og ísfram­leið­andinn Ben & Jerry's hafa tekið höndum saman. Þau vilja að fólk fá sér ís með Netflix áhorfinu.

Efnis­veitan Netflix og ísframleiðandinn Ben & Jerry's hafa tekið höndum saman, og vilja að notendur Netflix geti fengið sér ís sem er sérstak­lega merktur Netflix. „Fáðu þér ís með Netflix áhorfinu,“ eru skila­boðin.

Hann mun fást í búðum um öll Banda­ríkin, and sérstök vöru­tegund frá Ben & Jerry's - sem nefnist Netflix and Chill'd - er nú komin á markað, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg.

Með þessu fetar Netflix inn á nýja braut þegar kemur að samstarfi við matvæla­fram­leiðendur.

Óhætt er að segja að þarna séu tvö stór fyrirtæki að leiða saman hesta sína. Netflix er metið á 150 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 19 þúsund milljörðum króna, og er ein stærsta efnis­veita heims, en á í harðri samkeppni við Amazon, Disney og Apple, meðal annarra.

Ben & Jerry's er rótgróið fjölskyldu­fyrirtæki í grunninn, en hefur verið skráð á markað árum saman. Árið 2001 keypti breska fyrir­tækið Unilever stóran eignar­hlut í fyrir­tækinu, og hefur verið burðarrás í hluthafa­hópnum síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár