Inga Sæland tekur yfir skrifstofur Miðflokksins og kallar það „karma“

„Hvað er karma, ef það er ekki þetta?“ segir Inga Sæland um flutninga þing­flokks Flokks fólksins yfir í skrifstofu­húsnæði Alþingis þar sem níu manna þing­flokkur Miðflokksins, sem í dag er einungis tveggja manna, var áður til húsa.

Inga Sæland er hæstánægð með nýja vinnuaðstöðu Flokks fólksins og ljóst er á henni að það skemmir ekki fyrir að Miðflokkurinn neyðist til að kveðja vinnuaðstöðuna vegna mjög dvínandi þingstyrks.
Inga Sæland er hæstá­nægð með nýja vinnu­að­stöðu Flokks fólks­ins og ljóst er á henni að það skemmir ekki fyrir að Mið­flokk­ur­inn neyð­ist til að kveðja vinnu­að­stöð­una vegna mjög dvín­andi þing­styrks. Mynd: Bára Huld Beck

Núna á fyrstu dögum nýs þings eru þing­flokkar að koma sér fyrir í vinnu­aðstöðum í skrifstofu­húsnæði Alþingis, en í kosningunum í september urðu tals­verðar breytingar á þingstyrk flokkanna átta sem eiga sæti á þingi. Því fylgir uppstokkun.

Ein breytinganna sem verða, vegna breytts þing­styrks, er sú að Flokkur fólksins, sem er nú með sex þingmenn, fær vinnu­aðstöðu þar sem Miðflokkurinn sat áður með sína sjö og síðar níu þingmenn, eftir góða kosningu árið 2017.

„Hvað er karma, ef það er ekki þetta?“ segir Inga Sæland formaður Flokks fólksins í samtali við Kjarnann um þessi vista­skipti við Austur­völl. Á síðasta kjör­tímabili rak hún tvo þingmenn, þá Karl Gauta Hjaltason og Ólaf Ísleifsson, úr flokki sínum eftir að Klaustur­málið kom upp. Þeir gengu svo til liðs við Miðflokkinn.

„Báðir þessir gæjar sem við rákum úr Flokki fólksins, þeir eru ekki á þingi í dag,“ bendir Inga réttilega á.

Eftir að þeir Karl Gauti og Ólafur voru reknir úr þing­flokknum stóðu Inga og Guðmundur Ingi Kristinsson ein eftir í tveggja manna þing­flokki, sem er erfið staða. Það er einmitt raun­veruleiki Miðflokksins í dag, eftir að Birgir Þórarinsson færði sig yfir í Sjálfstæðis­flokkinn.

„Karma,“ segir Inga.

Veit ekki hvar Miðflokkurinn lendir

Flokks­formaðurinn sagði við Kjarnann í morgun að þing­verðir væru að vinna að því að flytja Miðflokkinn yfir á nýja skrif­stofu, en hún sagðist reyndar ekki viss um hvar þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason kæmu til með að fá starfs­aðstöðu.

Hún segir að skömmu eftir kosningar hafi hún heyrt af því að Miðflokks­menn ættu að færast á skrif­stofurnar við Austur­völl sem Flokkur fólksins hafði áður, en nú sé hún ekki alveg viss.

Hún segir annars að nýja vinnu­aðstaða þing­flokksins sé yndisleg. „Góður staður og bjartur og fagur,“ eins og hún orðar það.

„Við erum orðin svo mörg, það er svo skrítið, við erum svo mörg og við erum svo dugleg,“ segir Inga svo um þingflokk sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár