Miðflokkurinn mælist með 3,2 prósent í fyrstu könnun eftir kosningar

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist yfir kjör­fylgi í nýrri könnun frá MMR, sem er sú fyrsta frá kosn­ingum. Píratar og Viðreisn bæta nokkuð við sig frá kosn­ingum – og sömu­leiðis Sós­í­alista­flokkur Íslands. Mið­flokk­ur­inn hins vegar mælist afar lít­ill.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður og annar tveggja þingmanna Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður og annar tveggja þing­manna Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist yfir kjör­fylgi, í nýrri skoð­ana­könnun frá MMR, sem er sú fyrsta sem birt­ist eftir kosn­ingar. Flokk­ur­inn mælist með 17,9 pró­sent í könn­un­inni, en fékk 17,3 pró­sent í kosn­ing­unum sem fram fóru á dög­unum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 21,1 pró­sent fylgi, sem er rúmum þremur pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi flokks­ins og Píratar mæl­ast með 11,7 pró­sent fylgi, sem er rúmum þremur pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 3,2 pró­sent í þess­ari könnun MMR og hefur aldrei fyrr mælst jafn lágur í nokk­urri könnun frá stofnun flokks­ins árið 2017, en flokk­ur­inn fékk 5,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum fyrir mán­uði.

Síðan þá hefur einn þing­maður yfir­gefið flokk­inn og gengið til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og fleiri flokks­menn, til dæmis vara­bæj­ar­full­trúi á Akureyri, sagt skilið við flokk­inn.

Vinstri græn mæl­ast með 12,1 pró­sent fylgi, hálfu pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi en Sam­fylk­ingin mælist með 10,1 pró­sent fylgi, sem er á pari við það sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum.

Viðreisn mælist með 10 pró­sent fylgi, sem er hart­nær tveimur pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi.

[adspot]

Flokkur fólks­ins hins vegar mælist með 7,8 pró­sent, pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 5,5 pró­sent fylgi, sem hefði dugað flokknum inn á þing, en þangað náði flokk­ur­inn ekki enda var kjör­fylgi hans á lands­vísu ein­ungis 4,1 pró­sent.

Næstu alþing­is­kosn­ingar fara fram árið 2025, að öllu óbreyttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár